Ferðablaðið 2024 er komið út

Ferðablaðið 2024 er nú komið á vefinn. Lesið allt um eignir orlofssjóðs og það helsta sem í boði er á komandi sumri í blaðinu. Það er tilvalið að hafa Ferðablaðið við höndina þegar sumarúthlutun er annars vegar.
Kæru félagar. Ferðablaðið 2024 er komið á vefinn og um að gera að hafa það til hliðsjónar þegar sumarfríið er skipulagt. Það er opið fyrir umsóknir um vikuúthlutun á orlofsvef sjóðsins fram að hádegi á þriðjudaginn 12. mars. Það er svo tæpri viku seinna sem opnar fyrir dagsleigur (sjá nánar í blaði).
Þeir sem ekki hafa sótt um eru hvattir til að gera það um helgina. Ef búið er að sækja um, en vilji er fyrir hendi til að endurskoða valið, er hægt að gera það. Til þess þarf að fara inn á „síðan mín“ á Orlofsvefnum og eyða út innsendri umsókn og hefja ferlið uppá nýtt. Það er gert með að fara í „mínar umsóknir“, finna umsóknina sem er með stöðuna „sótt um“ og ýta á rauða krossinn undir „aðgerðir. Þá er umsóknin farin úr kerfinu og til að sækja aftur um þarf að fara í flipann „umsókn um úthlutun“ til að byrja ferlið uppá nýtt. Ef tími er til að grúska er hægt að kynna sér hér hvaða punktafjöldi lá að baki úthlutun vikuleiga á síðasta ári hér.
Smelltu á myndina til að lesa blaðið
Vorboðinn ljúfi
Þau tíðindi urðu í fyrravor að Ferðablað OKÍ var endurvakið eftir margra ára útgáfuhlé. Ákvörðun um að hætta útgáfu blaðsins var tekin á þingi KÍ árið 2018. Á síðasta þingi KÍ 2022 var hins vegar ákveðið að hefja útgáfu blaðsins á ný, en í rafrænu formi. Útgáfan er árleg og í dag kom út 2. árgangur Ferðablaðsins. Í blaðinu er að finna yfirgripsmikið efni um að helsta sem félagsmönnum KÍ býðst í orlofsmálum.
Félagsmenn KÍ eru hvattir til að kynna sér efni blaðsins en þar er að finna fréttir og greinar um það helsta sem er í boði á komandi sumri. Þá er sjónum einnig beint að því sem hægt er að gera á viðkomandi stöðum, svo sem gönguleiðir, söfn, merkilegir staðir og afþreying.
