Ferðablaðið 2017 er komið út

Venju samkvæmt er að finna upplýsingar um sumarhús og íbúðir sem standa félagsmönnum í Kennarasambandi Íslands til boða í sumar.
Fjöldi orlofshúsa er svipaður og í fyrra en þó hafa orðið nokkrar breytingar, hús hafa dottið út og önnur komið í staðinn. Flest ný orlofshús eru á Akureyri og Austfjörðum. Orlofshúsum erlendis hefur fjölgað um eitt frá í fyrra.
Þá hefur Ferðablaðið að geyma upplýsingar um ýmsa afslætti sem félagar KÍ geta nýtt sér; svo sem niðurgreiðslu á gönguferðum, flugávísanir, hótelmiða og afsláttarkort af ýmsum toga.Ferðablaðið 2017 verður sent félagsmönnum KÍ á næstu dögum. Við minnum á Orlofsvef KÍ en þar er að finna ítarlegri upplýsingar og myndir.
Ferðablaðið 2017 í Issuu-flettiútgáfu
Forsíðumyndin
Herdís Kristinsdóttir, grunnskólakennari í Breiðagerðisskóla, er höfundur forsíðumyndarinnar. Herdís fær 45 þúsund krónur í verðlaun fyrir myndina. Efnt var til samkeppni, eins og síðustu ár, um forsíðumynd og bárust um eitthundrað myndir. Orlofssjóður KÍ þakkar öllum þeim sem tóku þátt í myndasamkeppninni.