Ferðablaðið 2016
Ferðablaðið 2016 er komið út. Í blaðinu er að finna upplýsingar um sumarhús og íbúðir sem standa félögum KÍ til boða í sumar. Framboð sumarhúsa er svipað og var í fyrra. Orlofssjóður KÍ býður félagsmönnum þrjá orlofskosti utan landsteinanna, þrjú hús nærri Alicante á Spáni og íbúð í Bournemouth á Englandi.
Þá hefur Ferðablaðið að geyma upplýsingar um ýmsa afslætti sem félagar KÍ geta nýtt sér; svo sem niðurgreiðslu á gönguferðum, flugávísanir, hótelmiða og afsláttarkort af ýmsum toga.
Úthlutun á sumarhúsum á Spáni og íbúðinni á Englandi hefst klukkan 18.00 mánudaginn 14. mars 2016.
Úthlutun á sumarhúsum innanlands hefst á tímabilinu 4. til 7. apríl 2016 og eru félagsmenn hvattir til að kynna sér reglur þar að lútandi og er fjallað um þær í Ferðablaðinu.
Fleiri myndir og frekari upplýsingar er að finna á Orlofsvef KÍ.
Forsíðumyndin
Forsíðumynd Ferðablaðsins 2016 tók Hafrún Halla Ingvarsdóttir, leikskólakennari á Akureyri, og bar hún sigur úr býtum í forsíðumyndakeppni Orlofssjóðs. Hafrún Halla fær 40 þúsund krónur í verðlaunafé. Á annað hundrað ljósmyndir bárust í keppnina og kann Orlofssjóður öllum þeim sem sendu inn myndir bestu þakkir fyrir.
Ferðablaðið 2016 í Issuu-útgáfu