Ferðablað Orlofssjóðs KÍ er komið út
Fréttir|23. febrúar 2023

Þau tíðindi urðu í morgun að Ferðablað OKÍ var endurvakið eftir margra ára útgáfuhlé. Í blaðinu er að finna yfirgripsmikið efni um að helsta sem félagsmönnum KÍ býðst í orlofsmálum.
Fyrsta tölublað endurreists Ferðablaðs hefur litið dagsins ljós. Nýja blaðið er í formi vefrits og ráða umhverfissjónarmið þar för. Margir félagsmenn muna vafalaust eftir Ferðablaðinu sem var gefið út á pappír um árabil. Ákvörðun um að hætta útgáfu blaðsins var tekin á þingi KÍ árið 2018. Á nýliðnu þingi KÍ, sem fór fram síðla árs 2022, var hins vegar ákveðið að hefja útgáfu blaðsins á ný, en í rafrænu formi.