Ferðaávísun KÍ í boði

Ferðaávísun veitir félagsmönnum aðgang að sértilboðum á gistingu um allt land.
Ferðaávísunin leysir af hólmi gistimiða sem hingað til hefur þurft að kaupa vegna gistingar á fyrir fram ákveðnum gististað. Um er að ræða sértilboð frá fjölda gististaða víðs vegar um landið og er hægt að skoða hvað er í boði með því að fara inn á Orlofsvefinn.
Félagsmenn þurfa áfram að bóka gistingu á gististað og taka fram að greitt sé með ferðaávísun. Við komu á gististað, taka félagsmenn fram að þeir greiði að hluta eða öllu með ferðaávísun og gefa upp kennitölu sína. Verð gistingarinnar er þá dregið frá upphæð ferðaávísunarinnar að fullu eða hluta.
Félagsmenn kaupa ferðaávísunina á Orlofsvefnum. Fyrst þurfa félagsmenn að skrá sig inn á orlofsvefinn með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Þá er valið „Miðar, gjafabréf & kort“ og þar velur félagsmaður að kaupa ferðaávísun. Hægt er að kaupa ávísun í þremur verðgildum 5.000 kr., 10.000 kr. eða 20.000 kr. eða ákveða upphæð að eigin vali.
Ávísunin er niðurgreidd um 20% af Orlofssjóði KÍ, en hámarks niðurgreiðsla er 12.000 kr. á ári.
Dæmi: Ef félagsmaður velur að kaupa ávísun að verðgildi 10.000 kr., greiðir hann 8.000 kr. og 4 punkta fyrir hana. Samtals getur félagsmaður því keypt ávísun fyrir 60.000 kr. og greitt fyrir hana 48.000 kr.
Þegar hámarks niðurgreiðslu er náð, getur félagsmaður keypt áfram ávísun en greiðir þá uppsett verð ávísunarinnar.
Nánari upplýsingar frá þjónustuaðila
Ferðaávísun tryggir bestu kjörin á gistingu
Kennarasamband Íslands og önnur stéttarfélög sem eiga aðild að orlofskerfinu Frímanni hafa sameinað krafta sína og komist að samkomulagi við fjölmörg hótel og gistiheimili víðs vegar um landið. Markmiðið er að tryggja félagsmönnum hagstæðasta verð fyrir gistingu sem völ er á.
Félagsmenn geta skráð sig inn á orlofsvefinn og keypt ferðaávísanir sem gilda á tugum hótela og gistiheimila í öllum landsfjórðungum, án þess að festa dagsetningu dvalarinnar. Þeir velja þann gististað sem þeim hugnast en herbergi, þjónusta og verð er breytilegt á milli gististaða.
Ef svo háttar að umrætt hótel eða gistiheimili er fullt, eða ef ferðaáætlunin tekur breytingum þegar nær ferðinni dregur, er hægt að nota ávísunina hjá hvaða samstarfsaðila sem er, hvenær sem gistipláss er laust og með hvaða tilboði sem hótelin og gistiheimilin kunna að bjóða síðar. Þannig hafa félagsmönnum verið tryggð bestu hugsanlegu kjör og útilokað að þeir fari á mis við betri tilboð, til dæmis þegar líður á sumarið.
Sértilboð fyrir stéttarfélög
Samstarfsaðilar umræddra stéttarfélaga hafa nú gert félagsmönnum sín allra bestu tilboð fyrir sumarið. Þessi sérkjör er hægt að skoða með því að fara inn á Orlofsvefinn og skrá sig inn, á sama hátt og þegar orlofshús eða hótelmiðar eru bókaðir. Þegar smellt er á „Ferðaávísun“ opnast síða þar sem hægt er að skoða þau fjölmörgu tilboð á gistingu sem félagsmönnum standa til boða. Í boði er allt frá einfaldri gistingu á litlum gistiheimilum upp í vegleg hótelherbergi með fullri þjónustu og dýrindis morgunverði. Einnig er hægt að velja upphæð að eigin vali, til dæmis 5.000 eða 15.000 krónur, og nota hvar sem er þegar ferðast er um landið. Ávísunin veitir aðgang að bestu tilboðum þessara hótela og gistiheimila. Valið er þitt.
Engin binding og aukið frelsi
Ferðaávísunin er rafræn og er geymd á svæði félagsmanns á Orlofsvefnum. Kvittun berst í tölvupósti. Ávísunin leysir af hólmi gistimiða sem hingað til hefur þurft að nálgast til félagsins og framvísa á fyrir fram ákveðnum gististað. Þessu nýja fyrirkomulagi fylgir meira frelsi og stórauknir valmöguleikar, enda er ávísunin ekki bundin við tilteknar dagsetningar, einstakt gistiheimili, hótel eða hótelkeðju. Jafnframt geta félagsmenn nýtt ávísunina með hvaða sértilboðum sem samstarfsaðilar okkar kunna að bjóða síðar.
Ekki er þörf á að fullnýta þá inneign sem félagsmenn eiga í formi ávísunarinnar hjá einu hóteli eða gistiheimili, heldur getur hún nýst á fleiri gististöðum. Ef dýrari gisting er valin en upphaflega stóð til, greiðir félagsmaðurinn einfaldlega mismuninn á staðnum. Óhætt er að skora á félagsmenn að huga tímanlega að því að panta gistingu, til að auka líkurnar á að herbergi séu laus á gististaðnum.
Spurt og svarað:
Hvers vegna ætti ég að kaupa ferðaávísun?
Vegna þess að hótelkeðjur og gistiheimili hafa boðið félagsmönnum KÍ og annarra stéttarfélaga, í krafti fjölda þeirra, betri tilboð en hægt er að fá á almennum markaði.
Hvar sé ég hvaða tilboð eru í boði?
Á Orlofsvef KÍ geturðu skráð þig inn, eins og þegar þú sækir um orlofshús, og valið „Ferðaávísun“. Þá koma valmöguleikarnir upp. Hvert hótel eða gistiheimili getur verið með mörg tilboð, eftir gerð herbergis eða innifalinni þjónustu.
Hvernig get ég treyst því að það komi ekki fram betri tilboð eftir að ég hef keypt ferðaávísun?
Ef sá gististaður sem þú velur þér lækkar verð í millitíðinni, þá fullnýtir þú ekki ávísunina. Það er ein af lykilforsendum þessa samstarfs, að ávísunin gildi með öllum öðrum tilboðum hótelanna. Með þessu verður fylgst náið.
Hvar kaupi ég ferðaávísunina og hvernig nálgast ég hana?
Þú ferð inn á Orlofsvef KÍ og smellir á „Ferðaávísun“. Þegar þú hefur valið þér vöru og greitt fyrir með greiðslukorti, færðu kvittun í tölvupósti. Ávísunin þín verður á þínu svæði á orlofsvefnum og gististaðir geta flett kennitölunni upp, þegar þú mætir á staðinn.
Hvernig nota ég ferðaávísunina?
Þegar þú mætir á áfangastað gefur þú upp kennitölu þína, sem er þá skráð í bókunarkerfi gististaðarins. Þú þarft engu að framvísa öðru en persónuskilríkjum.
Get ég fengið ávísunina endurgreidda?
Já, þú getur fengið ferðaávísunina endurgreidda. Þú færð þá til baka sömu upphæð og þú lagðir út, sé hún ónýtt. Hafi punktar verið teknir af félagsmanni við kaup á ferðaávísun, þá fást þeir líka endurgreiddir.
Er ferðaávísunin niðurgreidd af Orlofssjóði KÍ?
Já, Orlofssjóður KÍ niðurgreiðir hótelávísun um 20% þeirrar upphæðar sem keypt er, að hámarki 12.000 kr. / 24 punkta á ári. Þegar félagsmenn hafa fullnýtt niðurgreiðsluna, geta þeir áfram keypt ferðaávísun en greiða þá fullt verð fyrir hana.
Ég hef notað hluta ferðaávísunarinnar, get ég fengið restina til baka?
Já, þú getur alltaf fengið þann hluta endurgreiddan sem ekki hefur verið nýttur. Ef ávísunin hefur verið niðurgreidd að hluta verður endurgreiðslan í réttu hlutfalli við útlagðan kostnað þinn.
Rennur ávísunin út?
Nei, hún rennur aldrei út og þú getur sótt um endurgreiðslu hvenær sem er.
Ég hef hvorki aðgang að tölvu né snjallsíma eða er ekki með rafræn skilríki. Hvernig get ég keypt ferðaávísun?
Ekki hika við að hafa samband við skrifstofu KÍ ef þig vantar aðstoð. Við hjálpum þér með ánægju og reynum að leysa málin. Síminn er 595 1111, netfang orlof@ki.is.