Félagsmenn KÍ í ríkisreknum framhaldsskólum kjósa um verkfallsboðun
Atkvæðagreiðsla um boðun verkfalls hjá Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum hófst í morgun. Fundur trúnaðarmanna og formanna kennarafélaga í framhaldsskólum ákvað síðastliðinn fimmtudag að efnt skyldi til atkvæðagreiðslu um hvort hvort boða skuli verkfall.
Atkvæðagreiðslan fer fram dagana 18. til 21. febrúar. Niðurstöðu úr atkvæðagreiðslunni er að vænta um mánaðamótin og fari svo að félagsmenn KÍ í ríkisreknum framhaldsskólum samþykki verkfallsboðun gæti það hafist um miðjan marsmánuð.
Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum hafa átt í kjaraviðræðum við ríkið frá því í byrjun desember síðastliðinn sem hafa ekki borið árangur. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara 23. janúar en kjarasamningur FF og FS við ríkið rann út 31. janúar síðastliðinn.