Félagsmenn í SÍ og FSL kjósa um nýja kjarasamninga

Fréttir|31. ágúst 2022

Atkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamninga tveggja stjórnendafélaga innan KÍ, FSL og SÍ, er hafin.

Kjörstjórn KÍ hefur ákveðið að atkvæðagreiðsla um kjarasamninga Félags stjórnenda leikskóla (FSL) annars vegar og Skólastjórafélags Íslands (SÍ) fari fram dagana 31. ágúst til 5. september. Samninganefndir FSL og SÍ skrifuðu hvor um sig undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 26. ágúst síðastliðinn.

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 9:00 miðvikudaginn 31. ágúst
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12:00 mánudaginn 5. september

Atkvæðagreiðsla félagsmanna í FSL

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi stjórnenda leikskóla sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.

Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FSL 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðagreiðsla félagsmanna í SÍ

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Skólastjórafélags Íslands sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Þeir sem ekki hafa rétt til að taka þátt í kosningunni eru félagsmenn sem eru í launalausu leyfi, félagsmenn sem hafa beina félagsaðild að KÍ, félagsmenn sem þiggja atvinnuleysisbætur og starfsmenn KÍ. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.

Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SÍ 2022 og þá birtist atkvæðaseðillinn.