Félagsmenn í FG og FL greiða atkvæði um samning

Fréttir|30. maí 2023

Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna í Félagi grunnskólakennara og Félagi leikskólakennara um nýjan kjarasamning, hjá hvoru félagi, hefst á hádegi í dag.

Tvö aðildarfélög Kennarasambandsins, Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara, skrifuðu undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga á föstudagskvöld. 

Félagsmenn þessara félaga ganga nú til atkvæða um nýja samninga og þarf niðurstaðan að liggja fyrir á föstudag. Báðir samningar hafa gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. maí 2024. 

Atkvæðagreiðslan hjá Félag grunnskólakennara

Kjörstjórn hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan verði rafræn. 

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 12:00 þriðjudaginn 30. maí 2023
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12:00 föstudaginn 2. júní 2023

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi leikskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FG 2023 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

 

Atkvæðagreiðslan hjá Félagi leikskólakennara

Kjörstjórn hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan verði rafræn. 

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 12:00 þriðjudaginn 30. maí 2023
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12:00 föstudaginn 2. júní 2023

Atkvæðisrétt hafa félagsmenn í Félagi leikskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögum landsins. Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.

Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2023 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ. Starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Gunnarsdóttir, fjola@ki.is. Síminn er 595 11 11.