Félagsmenn hafa þrjár vikur – punktastaða ræður

Fréttir|24. mars 2020

Orlofssjóður KÍ hefur breytt úthlutunarreglum er varðar leigu sumarhúsa á komandi sumri.

Orlofshús sem verða leigð í vikuleigu á komandi sumri voru sett í úthlutun í gær. Þetta er breyting á úthlutunarreglum frá fyrri árum því nú hafa félagsmenn þrjár vikur til að skoða eignir, meta og velja hvað þeir vilja bóka. Hvenær sem er á þessu þriggja vikna tímabili er hægt að setja inn ósk um bókun, mest er hægt að velja sex orlofskosti. 

Umsóknir þurfa að hafa borist á miðnætti sunnudaginn 12. apríl. Daginn eftir, mánudaginn 13. apríl, mun orlofskerfið úthluta eignunum og verður miðað við réttindi félagsmanna, það er punktaeign og punktastöðu. 

Félagsmenn sem fá jákvætt svara hafa frest til hádegis fimmtudaginn 16. apríl til að greiða leiguna. Þær eignir sem ekki ganga út verða settar í endurúthlutun föstudaginn 17. apríl. 

 

Athugið að félagsmenn í FKE sem hafa látið af störfum geta ekki tekið þátt í þessari úthlutun. Eignir sem eru leigðar í flakkara verða leigðar eftir fyrirkomulaginu „fyrstur kemur, fyrstur fær“ samkvæmt punktastöðu.

Opnunardagar fyrir bókanir flakkaraeigna sumarið 2020 sem hér segir:

  • Mánudagur 20. apríl kl. 18:00 00 – þeir sem eiga 300 punkta eða fleiri
  • Þriðjudagur 21. apríl kl. 18:00 – þeir sem eiga 100 punkta eða fleiri
  • Miðvikudagur 22. apríl kl. 18:00 – þeir sem eiga 1 punkt eða fleiri
  • Fimmtudagur 23. apríl kl. 18:00 – 0 til -23 punkta og FKE félagar sem eiga punkta

Lesa meira á síðu Orlofssjóðs

Fara beint inn á Orlofsvefinn (Frímann) og skoða eignir og fleira. 

Skoða yfirlit yfir eignir Orlofssjóðs

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Orlofssjóðs – netfangið er orlof@ki.is.