Félagsmenn FL í Gefnarborg greiða atkvæði

Fréttir|20. júní 2022

Skrifað var undir kjarasamning FL og Sunnugarðs sem rekur leikskólann Gefnarborg 13. júní síðastliðinn.

Félag leikskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands í FL sem starfa hjá Sunnugarði ehf. Greidd eru atkvæði um kjarasamning milli Sunnugarðs ehf. og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara sem var undirritaður 13. júní 2022 með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Sunnugarður ehf. rekur leikskólann Gefnarborg í Suðurnesjabæ

Kjörstjórn hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti og hefjist mánudaginn 20. júní 2022, kl. 9:00 og ljúki miðvikudaginn 22. júní 2022, kl. 16:00.

Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.

  • Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.
  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL 2022 – Sunnugarður ehf. og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já,   Nei,   Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.

Kjósa má aftur, en um leið ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.

Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Atkvæðaseðill birtist eingöngu hjá þeim sem eru á kjörskrá. Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki atkvæðaseðil á Mínum síðum skal viðkomandi hafa samband við starfsmann kjörstjórnar sem athugar málið.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is