Félagsmenn FL hjá Kennarafélaginu samþykkja kjarasamning

Fréttir|16. október 2023

Félagsmenn Félags leikskólakennara (FL) sem starfa hjá Kennarafélaginu samþykktu nýgerðan kjarasamning með öllum greiddum atkvæðum. Þar með er búið að semja fyrir allt félagsfólk FL.

Skrifað var undir kjarasamning vegna Félags leikskólakennara 9. október 2023. Samningurinn var kynntur félagsfólki og svo borinn undir atkvæði meðlima Kennarafélagsins ehf. dagana 11.–13. október. 

Úrslit atkvæðagreiðslnanna voru svohljóðandi:

  • Á kjörskrá voru 22
  • Atkvæði greiddu 9 eða 40,91%
  • Já sögðu 9 eða 100,00%
  • Nei sögðu 0 eða 0,00%
  • Auðir 0 eða 0,00%

Nýr kjarasamningur FL gildir frá 1. apríl 2023 til 31. maí 2024. Hér er hægt að kynna sér kjarasamninginn.