Félagsmenn FL, FSL og SÍ fá hagvaxtarauka

Fréttir|22. janúar 2026

Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélag Íslands eru með lausa samninga en njóta þrátt fyrir það hagvaxtarauka.

Í kjarasamningum Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélags Íslands sem gerðir voru árið 2020 var samið um að á árabilinu 2020 til 2023 komi til framkvæmda launaauki á grundvelli þróunar vergrar landsframleiðslu á hvern íbúa.

Útreikningur launaaukans byggir á bráðbirgðatölum Hagstofu Íslands um vísitölu vergrar landsframleiðslu á mann sem birtast í byrjun mars ár hvert fyrir næstliðið ár.

Þrátt fyrir að félögin þrjú, FL, FSL og SÍ, séu með lausa samninga frá síðustu áramótum þá er almenna reglan sú að unnið er eftir útrunnum kjarasamning þar til nýr samningur hefur verið undirritaður.

Samningsaðilar hafa því ákveðið að  hagvaxtarauki að upphæð 10.500 kr. komi á taxtalaun frá 1. apríl og til greiðslu þann 1. maí næstkomandi.

Hagvaxtaraukinn á við félagsmenn í Skólastjórafélagi Íslands og félagsmenn í Félagi leikskólakennara og Félagi stjórnenda leikskóla sem starfa í leikskólum sveitarfélaganna og hjá sjálfstætt starfandi leikskólum.

Ekki verður um frekari hagvaxtarauka að ræða á árinu 2022 en hagvaxtarauki 2023 verður skoðaður út frá sömu forsendum þegar þar að kemur.