Félagsfólk KÍ samþykkir kjarasamning

Nýr kjarasamningur Kennarasambands Íslands hefur verið samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Félagsfólk Félags framhaldsskólakennara (FF), Félags grunnskólakennara (FG), Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT), Félags leikskólakennara (FL), Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS), Félags stjórnenda leikskóla (FSL) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ) samþykkti nýgerðan kjarasamning Kennarasambands Íslands (KÍ), við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar, og ríkið hins vegar. Gildandi kjarasamningar aðildarfélaganna framlengjast því til til 31. mars 2028, með breytingum, samkvæmt innanhússtillögu ríkissáttasemjara.
Þar með hefur félagsfólk aðildarfélaga Kennarasambands Íslands í fyrsta sinn í sögu sambandsins samþykkt sameiginlega nýjan kjarasamning.
Innanhússtillagan, sem er ígildi kjarasamnings aðildarfélaganna við ríki og sveit, var undirrituð, með fyrirvara um samþykki félagsfólks, í húsakynnum ríkissáttasemjara 25. febrúar. Atkvæðagreiðsla hófst á hádegi, föstudaginn 28. febrúar og henni lauk á hádegi í dag, þriðjudaginn 4. mars.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi:
- Á kjörskrá voru 11.115
- Atkvæði greiddu 8.485 eða 76,34%
- Já sögðu 7.878 eða 92,85%
- Nei sögðu 517 eða 6,09%
- Auðir voru 90 eða 1,06%
Hinn nýi samningur gildir til 31. mars 2028.
Félagsfólk FF og FS samþykkti bókun
Félagsfólk Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS), samþykkti einnig samkomulag um breytingar á ákvæðum 2.1.6.6. og 2.1.6.6.1 í kjarasamningum FF og FS í sér atkvæðagreiðslu, sem einnig lauk á hádegi í dag.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi:
- Á kjörskrá voru 1.544
- Atkvæði greiddu 946 eða 61,27%
- Já sögðu 531 eða 56,13%
- Nei sögðu 384 eða 40,59%
- Auðir voru 31 eða 3,28%