Félagsfólk FL í Samtökum sjálfstæðra skóla samþykkti kjarasamning
Fréttir|28. júní 2023

Um 89 prósent greiddu atkvæði með nýjum kjarasamningi.
Atkvæðagreiðsla stóð dagana 26. júní til 28. júní 2023. Mikill meirihluti greiddi atkvæði með nýju samkomulagi um kjarasamning milli Kennarasambands Íslands, vegna Félags leikskólakennara, (FL), og Samtaka sjálfstæðra skóla, (SSSK), sem skrifað var undir 23. júní 2023. Hinn nýi samningur tryggir félagsmönnum FL, sem starfa í skólum innan SSSK, sama kjarasamning og gerður var við sveitarfélögin á vordögum. Atkvæðagreiðslan tók til félagsmanna FL sem starfa í um fjörutíu sjálfstæðum leikskólum vítt og breitt um landið.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er þessi:
- Á kjörskrá voru 300
- Atkvæði greiddu 114, eða 38,00%
- Já sögðu 104, eða 89,47%
- Nei sögðu 9, eða 7,9%
- Auðir seðlar voru 3, eða 2,63%
Leikskólarnir sem um ræðir eru
- Hjallastefnan; Akur, Barnaból, Völlur, Hjalli, Ásar, Litlu Ásar, Hnoðraholt, Bergheimar, Askja, Laufásborg, Hraunborg, Hólmasól, Eyrarskjól, Sólir, Sólborg, Barnaskólinn Garðabæ, Reykjavík og Hafnarfirði
- Skóli ehf.; Heilsuleikskólinn Krókur, Kór, Urðarból og Ársól ungbarnaskóli
- Félagsstofnun stúdenta; Mánagarður og Sólgarður
- LFA ehf; Fossakot og Korpukot
- Barnaheimilið Ós
- Karen ehf.; Gimli
- Skóli Ísaks Jónssonar ehf
- Lundur ehf.; Lundur
- Sunnugarður ehf.; Gefnarborg
- Landakotsskóli
- Dignitas ehf.; Regnboginn
- Leikskólinn Sjáland
- Leikskólinn Skerjagarður
- Leikskólinn Sælukot
- KFUM/KFUMK; Vinagarður
- Leikskólinn Vinaminni
- Krílasel; Ungbarnaleikskólinn Krílasel