Félagsdómur skilgreinir útkall sem vinnu á vinnustað

Fréttir|17. maí 2022

Félagsdómur hefur kveðið upp dóm í máli Félags grunnskólakennara gegn Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar, vegna vinnu kennara utan daglegs vinnutíma.

Félagsdómur hefur fallist á kröfu Félags grunnskólakennara um að Hafnarfjarðarbæ beri að greiða kennara fyrir vinnu sem hann var beðinn um að inna af hendi utan hefðbundins vinnutíma. Vinnan varðaði aðstoð við smitrakningu vegna COVID-19.

Félag grunnskólakennara sótti málið, fyrir hönd kennarans, og gerði kröfu um að greitt yrði samkvæmt ákvæði í kjarasamningi um útkall. Kennarinn hafði áður gert kröfu um greiðslu vegna útkalls en á það féllst skólastjóri ekki. Óumdeilt er að kennarinn vann vinnuna að beiðni yfirmanns.

Tekist var á um fyrir Félagsdómi hvort útkallsákvæði kjarasamnings ætti að gilda, en samkvæmt því skal greiða yfirvinnukaup fyrir að minnsta kosti þrjár stundir nema reglulegur vinnutími viðkomandi hefjist innan þriggja klukkustunda frá því hann fór í vinnu.

Félagsdómur féllst ekki á kröfu FG um kennarinn fengi greitt útkall í þau þrjú skipti sem hann vann heima hjá sér að smitrakningu. Dómurinn felst hins vegar á að kennarinn skuli fá greitt fyrir vinnu sína samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamnings. Þannig bæri Hafnarfjarðarbæ að greiða fyrir vinnuna enda kennarinn einvörðungu í vinnusambandi við sveitarfélagið.

Í niðurstöðu Félagsdóms kemur fram að dómurinn telur að útkallsákvæðið gildi einungis ef starfsmaður þarf að fara á vinnustað. Vísar dómurinn í því tilliti til dóms frá árinu 2003. Þessu var Félag grunnskólakennara algjörlega ósammála enda sé í kjarasamningi gert ráð fyrir að vinna kennara geti að hluta farið fram utan vinnustaða; það er utan veggja þess grunnskóla sem um ræðir. Þá taldi félagið óumdeilt að útkallsákvæðið sé í kjarasamningi til að greiða fyrir óhagræði sem hlýst af því að starfsmaður sé kallaður til vinnu í frítíma sínum; og skiptir þá ekki máli hvar hann innir verkið af hendi.

Samband íslenskra sveitarfélaga er sýknað af kröfu FG um að kennarinn hafi átt rétt á greiðslu vegna útkalls en dómurinn felst, sem fyrr segir, á að kennarinn eigi engu að síður að fá greitt fyrir vinnu sína.

Karl Óttar Pétursson, lögmaður Félags grunnskólakennara, flutti málið fyrir hönd FG. Dómur féll 16. maí 2022.

Lesa dóminn í heild