Félags- og tilfinningahæfni nemenda þungamiðja nýs samstarfs

Fréttir|19. janúar 2024

Kennarasamband Íslands skrifaði í morgun, ásamt samstarfsaðilum, undir yfirlýsingu um stofnun nýrrar viðbótardiplómu á meistarastigi sem ætlað er að efla skólafólk í árangursríkum starfsháttum sem styðja við félags- og tilfinningahæfni barna og unglinga.

Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambandsins, undirritaði fyrir hönd Kennarasambands Íslands nú í morgun, samstarfsyfirlýsingu KÍ, Háskóla Íslands, Embættis landlæknis, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Félags fagfólks í frístundaþjónustu og mennta- og barnamálaráðuneytis um meistaranám til að efla fagfólk í skóla- og frístundastarfi í árangursríkum starfsháttum sem styðja við félags- og tilfinningahæfni barna og unglinga.

Með undirrituninni tóku samstarfsaðilar höndum saman um að efla þekkingu, hæfni og leikni fagfólks í skóla- og frístundastarfi um eflingu félags- og tilfinningahæfni barna og ungmenna. „Ég er spennt fyrir samstarfinu og hef miklar væntingar til þessarar nýju námsbrautar. Mér finnst svo frábært að það eigi að fara að horfa á mikilvægi félagsfærni og tilfinningaþroska í öllu starfi með börnum“, sagði Jónína við undirritunina.

Fundað um farsæld og menntun

Blásið var til ráðstefnu um menntun og farsæld barna í skóla- og frístundastarfi í tengslum við samstarfið sem fór fram föstudaginn 19. janúar á milli klukkan 09.00 og 15.30 í Stakkahlíð, húsakynnum Menntavísindasviðs. 

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, setti ráðstefnuna og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra flutti svo ávarp áður en samstarfsaðilar undirrituðu yfirlýsinguna um eflingu hæfni fagfólks á sviði tilfinninga- og félagshæfni og geðræktar barna og unglinga. Að því loknu kynnti Oddný Sturludóttir, aðjunkt við Menntavísindasvið, nýtt viðbótardiplómunám á meistarastigi sem stuðlar að markmiði samstarfsaðilana. 

 

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra flutti ávarp í upphafi ráðstefnu

 

Þá var komið að aðalfyrirlesurum ráðstefnunnar. Fyrst tók Kristján Kristjánsson, prófessor í heimspeki við Háskólann í Birmingham, til máls og fjallaði um heimspekilega sýn á farsæld menntunar. Sue Roffey, prófessor og sálfræðingur, fylgdi á eftir, en hún hefur lagt áherslu á jákvæða sálfræði í rannsóknum sínum. Berglind Hauksdóttir og Unnur Helga Ólafsdóttir, sérfræðingar á farsældarsviði Barna- og fjölskyldustofu, fóru því næst yfir samvinnu Barna- og fjölskyldustofu og Embætti landlæknis um innleiðingu farsældar í skólum. 

Eftir hádegi hélt Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ávarp, áður en Ingibjörg Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis, fjallaði um stöðu Heilsueflandi grunnskóla. Hann sagði að það þyrfti kjark til að setja á fót og sinna þessu verkefni, kjark í að horfa á þessa þætti í skólaumhverfinu og leggja áherslu á farsæld í skólastarfi, líkt og samfélagið kalli eftir. Flókin verkefni kalli á margþættar lausnir. 

„Við erum það góð og hæf innan þessara menntastofnana að við getum gert bæði - sinnt farsæld og menntun nemenda“, sagði Magnús Þór. „Við hlökkum til að vera hluti af þessu verkefni áfram. Verum kjörkuð áfram og komumst lengra í því að gera börnin okkar og skólanna farsælli.“

 


Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ávarpaði samkomuna eftir hádegi

 

Eftir hádegi fóru svo fram smiðjur þar sem tækifæri gafst til að eiga samtal við þátttakendur.

  • Hér er hægt að lesa meira um viðburðinn

Ný viðbótardiplóma í bígerð

Í samkomulaginu felst að Menntavísindasvið HÍ mun bjóða upp á 60 eininga viðbótardiplómu á meistarastigi, frá hausti 2024. Námið er ætlað þeim sem starfa, eða hyggjast starfa, sem fagfólk í skóla-, frístunda- og uppeldisstörfum, millistjórnendur í menntakerfinu og fagfólk úr stoðþjónustu og stjórnsýslu skóla- og frístundamála. 

Námið er liður í innleiðingu á menntastefnu til 2030, Lýðheilsustefnu, Framtíðinni – stefnu um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna til 2030 og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Við mótun námsins verður jafnframt horft til laga um heildstæða skólaþjónustu og þrepaskiptan stuðning í leik-, grunn- og framhaldsskólum sem kalla á að ólíkar fagstéttir í skóla- og frístundaumhverfi barna og unglinga tileinki sér nýtt verklag. Höfuðáhersla er lögð á inngildandi starfshætti og snemmtækan stuðning til að koma til móts við börn og ungmenni og til að byggja upp verndandi þætti í umhverfi þeirra.

Aðilar munu skipa fulltrúa í ráðgjafaráð sem fundar alla jafna tvisvar á ári og fylgist með þróun og framkvæmd námsins. Þá mun ráðið leitast eftir að kortleggja rannsóknar- og þróunarverkefni sem snúa að eflingu tilfinninga- og félagshæfni barna og ungmenna, ræða leiðir til að efla áherslu á þessa þætti í menntun fagfólks í skóla- og frístundastarfi og styðja við faglega umræðu hagaðila sem koma að uppeldi, menntun, farsæld og frístundastarfi barna og ungmenna.

„Ég er spennt fyrir samstarfinu og hef miklar væntingar til þessarar nýju námsbrautar. Mér finnst svo frábært að það eigi að fara að horfa á mikilvægi félagsfærni og tilfinningaþroska í öllu starfi með börnum“, sagði Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, við undirritunina.