Félagar í FT greiða atkvæði um vinnustöðvun
Samninganefnd Félags tónlistarskólakennara hefur falið kjörstjórn KÍ að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands í FT um vinnustöðvun er hæfist miðvikudaginn 22. október 2014 til að stuðla að framgangi fyrirliggjandi krafna félagsins.
Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 12 í dag, 30. september og lýkur mánudaginn 6. október næstkomandi klukkan 14.
Rúmir níu mánuðir eru síðan viðræðunefnd Félags tónlistarskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga skrifaði undir viðræðuáætlun og enn hafa samningar ekki náðst. Fimm fundir voru haldnir áður en kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara 12. júní síðastliðinn. Að sögn Sigrúnar Grendal, formanns FT, hafa verið haldnir um tíu fundir en ekkert hefur þokast.
„Það eru sömu meginsamningsmarkmið sem liggja til grundvallar fyrir þennan hóp eins og hjá leik- og grunnskólakennurum. Við skynjum það að framganga samninganefndar sveitarfélaganna á þessum tíu mánuðum sé óvenjuleg," sagði Sigrún Grendal í samtali við Morgunblaðið um helgina. Hún sagði jafnframt að það sem tónlistarskólakennurum og stjórnendum hafi verið boðið myndi þýða allt að 30 til 40 prósent lægri laun en leik- og grunnskólakennarar munu hafa í maí 2015. Því miður skynji samninganefnd FT lítinn samningsvilja hjá launanefnd sveitarfélaganna.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef Kennarasambandsins. Hægt er að greiða atkvæði í hvaða nettengdri tölvu sem er. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þeir sem ekki eru komnir með Íslykil geta pantað hann með því að smella á hnappinn Sækja um Íslykil sem er undir stóra bláa hnappinum Mínar síður. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar.
- Smellið á kosninguna sem heitir Atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun FT og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Veljið einn af eftirfarandi svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
- Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
- Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði skal smella á: Hætta við kosningu. Einnig er hægt að kjósa aftur ef viðkomandi skiptir um skoðun og gildir þá síðasta kosningin.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ. Starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir. Hægt er að ná í Fjólu með því að hringja í 595 1111 eða senda póst á fjola@ki.is.