Félagar í FSL og SÍ greiða atkvæði um nýja samninga

Fréttir|28. ágúst 2023

Atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga FSL og SÍ hófst á hádegi mánudaginn, 28. ágúst. Henni lýkur á hádegi föstudaginn 1. september.

Skólastjórafélag Íslands og Félag stjórnenda leikskóla skrifuðu undir nýja kjarasamninga 18. ágúst síðastliðinn. 

Báðir samningar eru stuttir, með gildistíma frá 1. október 2023 til 31. maí 2024. Kynning á samningunum hefur staðið yfir síðustu daga. 

Samningarnir hafa verið lagðir fyrir félagsmenn SÍ og FSL í rafrænni allsherjaratkvæðagreiðslu, á Mínum síðum á vef KÍ, sem mun standa frá mánudeginum til föstudags í næstu viku. 

Atkvæðagreiðsla hófst

  • Mánudaginn 28. ágúst klukkan 12:00

Atkvæðagreiðslu lýkur

  • Föstudaginn 1. september klukkan 12:00. 

Niðurstöður verða kynntar um leið og þær liggja fyrir.