Félagar í FG hvattir til að taka þátt í stjórnarkjöri
Fréttir|4. mars 2026

Alls höfðu 12,5 prósent félaga í FG greitt atkvæði í stjórnarkjöri um hádegi í dag. Rétt tæpur sólarhringur er til stefnu.
Félagsfólk FG velur sér nýja stjórn félagsins i allsherjaratkvæðagreiðslu. Ný stjórn FG mun taka við á aðalfundi FG í haust og sitja til ársins 2030.
Atkvæðagreiðslan hófst um hádegi á mánudag og klukkan tólf í dag höfðu 12.5% greitt atkvæði. Það er fremur dræm þátttaka.
Rétt tæpur sólarhringur er þar til atkvæðagreiðslunni lýkur, en það verður á slaginu 12 á morgun, fimmtudag.
Félagsfólk í FG er hvatt til að taka þátt í valinu á nýrri stjórn félagsins!
Fjórtán eru í eru framboði til stjórnar. Hægt er að kynna sér áherslur og stefnumál frambjóðenda á kosningasíðu FG.
Frambjóðendur til stjórnar í stafrófsröð
- Anna Guðrún Jóhannesdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara
- Álfhildur Leifsdóttir, kennari í Árskóla
- Eva S. Káradóttir, kennari í Grunnskólanum Þorlákshöfn
- Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir, kennari í Egilsstaðaskóla
- Geirlaug Ottósdóttir, kennari í Álftamýrarskóla
- Guðbjörg Íris Atladóttir, kennari í Rimaskóla
- Hildur Sigfúsdóttir, kennari í Heiðarskóla
- Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
- Íris Árný Magnúsdóttir, kennari í Vallaskóla
- Kolbrún Guðmundsdóttir, kennari í Sunnulækjarskóla
- Kristín Björnsdóttir, kennari í Ingunnarskóla
- Margrét Össurardóttir, kennari í Hvaleyrarskóla
- Sigurður Freyr (Bibbi) Sigurðarson, kennari í Brekkuskóla
- Örlygur Þór Helgason, kennari í Helgafellsskóla