Félag lífeindafræðinga styrkir baráttu kennara

Fréttir|24. febrúar 2025

Félögum Kennarasambandsins barst óvænt styrkur frá Félagi lífeindafræðinga síðastliðinn föstudag.

Vinnudeilusjóði Kennarasambands Íslands barst á föstudag styrkveiting frá stjórn Kjaradeilusjóðs Félags lífeindafræðinga á föstudaginn var. 

Um tilurð styrkveitingarinnar segir í tilkynningu á vef Félags lífeindafræðinga: „Fyrir stuttu barst félaginu fyrirspurn frá félagsmanni um hvort Félag lífeindafræðinga hefði hugsað um að styrkja KÍ í kjarabaráttu sinni en kennarar hefðu stutt lífeindafræðinga í erfiðu verkfalli árið 1995.“

Málið var í kjölfarið tekið upp á stjórnarfundi félagsins og því beint til Kjaradeilusjóðs sem tók í síðustu viku ákvörðun um að styrkja Vinnudeilusjóð KÍ.

Kennarasamband Íslands þakkar Félagi lífeindafræðinga innilega fyrir styrkinn og sýndan stuðning í baráttunni.