Félag leikskólakennara kynnir nýjan samning

Efnt verður til átta kynningafunda víða um land á næstu dögum.
Félag leikskólakennara efnir til átta kynningarfunda þar sem farið verður yfir helstu atriði nýs kjarasamnings.
Félagið skrifaði undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga 27. apríl síðastliðinn. Gildistími samningsins er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.
Rafræn atkvæðagreiðsla fer fram um samninginn og verða dagsetningar í því tilliti kynntar um leið og þær liggja fyrir.
Fundir fara fram sem hér segir
DEILD
TÍMASETNING
STAÐUR
8. deild
2. maí, mánudagur, klukkan 16:30
Íþróttahúsið Iða, Selfossi
3. deild
2. maí, mánudagur, klukkan 20:00
Ugluklettur, Borgarnesi
1. og 2. deild
3. maí, þriðjudagur, klukkan 17:00
Valsheimilið á Hlíðarenda
9. deild
3. maí, þriðjudagur, klukkan 19:30
Leikskólinn Vesturberg í Reykjanesbæ
5. deild
4. maí, miðvikudagur, klukkan 16:30
Miðgarður, Varmahlíð
6. deild
4. maí, miðvikudagur, klukkan 20:00
Brekkuskóli, Akureyri
7. deild
5. maí, fimmtudagur, klukkan 17:00
Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum
4. deild
9. maí, mánudagur, klukkan 17:00
Fimm ára deild Tanga, Ísafirði