Félag leikskólakennara fagnar 75 ára afmæli

Stórafmæli leikskólans verður fagnað í öllum svæðadeildum Félags leikskólakennara þann 18. september næstkomandi.
Félag leikskólakennara efnir til afmælishátíðar í öllum svæðadeildum félagsins þann 18. september. Tilefnið er ærið og ber að fagna.
Það eru 75 ár síðan tuttugu og tvær ungar konur, sem höfðu útskrifast sem fóstrur frá Uppeldisskóla Sumargjafar, stofnuðu samtök sem ætlað var að standa vörð um málefni þeirra, kjaraleg og fagleg. Fyrsta árið gekk félagið undir nafninu Athöfn en því var breytt ári síðar í Fóstra. Saga þessi verður reifuð á afmælisfagnaðinum.
Áhugasamir um afmælisviðburðina geta haft samband við fulltrúa svæðadeilda á sínu svæði, og fengið nánari upplýsingar um skráningu og staðsetningu.
Dagskrá hefst klukkan 17:15 og verður send út til svæðadeildanna.
Formaður FL flytur stutt ávarp, saga félagsins verður rakin og svo mun Ari Eldjárn skemmta gestum með uppistandi. Veitingar.
Kennarar á eftirlaunum eru sérstaklega velkomnir!
Alls eru svæðadeildirnar níu talsins
1. deild – Reykjavík
- Linda Ósk Sigurðardóttir, linda.osk.sigurdardottir@rvkskolar.is
2. deild – Kraginn
- Birna Bjarnason, birnabjarna@kopavogur.is
3. deild – Vesturland og Reykhólabyggð
- Karina Nielsen, kn@borgarbyggd.is
4. deild – Vestfirðir
- Gerður Einarsdóttir, gerdurei@isafjordur.is
5. deild – Norðurland vestra
- Ásbjörg Valgarðsdóttir, asvalg@simnet.is
6. deild – Norðurland eystra
- Kristjana Gunnarsdóttir, kris@akmennt.is
7. deild – Austurland
- Guðrún Ásta Friðbergsdóttir, gudrun.fridbertsdottir@mulathing.is
8. deild – Suðurland og Vestmannaeyjar
- Oddný Guðríður Pálmadóttir, oddnygp@arborg.is
9. deild – Vogar, Reykjanesbær, Grindavík og Suðurnesjabær
- Fjóla Ævarsdóttir, fjolan@gmail.com