Félag leikskólakennara fagnaði 75 ára afmæli

Fréttir|24. september 2025

Félag leikskólakennara rekur sögu sína aftur til ársins 1950 og fagnar því 75 ára afmæli um þessar mundir. Áfanganum var fagnað með heljarinnar veisluhöldum svæðadeilda.

Afmælinu var fagnað á fimmtudeginum 19. september. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, hóf dagskrána á að reifa langa og víðfeðma sögu félagsins með aðstoð góðra gesta. Þau Björg Bjarnadóttir, fyrrverandi formaður FL og varaformaður KÍ, Kristín Dýrfjörð, dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri, og Þröstur Brynjarsson, fyrrverandi formaður félagsins, voru honum innan handar og ráku söguna fyrir gestum í stuttum myndskeiðum. Í kjölfarið steig Ari Eldjárn grínisti á stokk við einkar góðar undirtektir. 

Um fjögur hundruð leikskólakennarar söfnuðust saman í Gullhömrum í Reykjavík til að fagna afmælinu og var streymt frá viðburðinum til annarra svæðadeilda. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá fögnuðinum.

Viðburðarík saga

Félag leikskólakennara var stofnað árið 1950 og hét þá Athöfn og skömmu síðar Stéttarfélagið fóstra. Fyrsti formaður þess var formaður var Elínborg Stefánsdóttir. Árið 1965 var nafninu aftur breytt og fékk þá félagið heitið Fóstrufélag Íslands áður en því var að lokum breytt í Félag leikskólakennara. Félagið var í fyrstu stéttarfélag, svo fagfélag og svo var því breytt í sjálfstætt stéttarfélag árið 1988. 

Félag leikskólakennara gerðist aðili að Kennarasambandi Íslands árið 2001 og er það annað fjölmennasta félag KÍ. Haraldur Freyr Gíslason er formaður.