Félag læsisfræðinga orðið að veruleika

Fréttir|12. október 2020

Stofnun félagsins hefur verið í bígerð talsverðan tíma en upphafið má rekja til síðasta árs þegar þær stöllur Auður Björgvinsdóttir, Katrín Ósk Þráinsdóttir og Guðbjörg Rut Þórisdóttir störfuðu saman hjá Menntamálastofnun sem læsisráðgjafar undir hatti verkefnisins Þjóðarsáttmáli um læsi.

Stofnfundur Félags læsisfræðinga á Íslandi var haldinn 22. september síðastliðinn sem fjarfundur. Stofnun félagsins hefur verið í bígerð talsverðan tíma en upphafið má rekja til síðasta árs þegar þær stöllur Auður Björgvinsdóttir, Katrín Ósk Þráinsdóttir og Guðbjörg Rut Þórisdóttir störfuðu saman hjá Menntamálastofnun sem læsisráðgjafar undir hatti verkefnisins Þjóðarsáttmáli um læsi.  Allar hafa þær gengið með þann í draum í maganum að starfsheitið læsisfræðingur verði tekið upp á Íslandi eins og víða þekkist í öðrum löndum og þegar leiðir þeirra lágu saman varð niðurstaðan sú að ráðast í stofnun félagsins. 

Störf læsisfræðinga hafa verið skilgreind af Alþjóðlegu læsissamtökunum ILA (International Literacy Association), starfssvið þeirra getur verið mjög vítt og þeir starfa ýmist í skólum, hjá fræðslusviði sveitarfélaga eða ríkinu. Í seinni tveimur tilvikunum er hlutverk læsisfræðinga að stýra og/eða taka þátt í stefnumótun varðandi læsiskennslu og að annast umsjón og framkvæmd starfsþróunar í skólum, t.d. með ráðgjöf og handleiðslu til kennara, skólastjórnenda og annars starfsfólks. Þeir læsisfræðingar sem starfa í skólum vinna gjarnan með nemendum sem eiga í erfiðleikum með að ná tökum á lestri og ritun ásamt því að vinna með öðrum  kennurum að bættri læsiskennslu. Auk þessa sjá læsisfræðingar um greiningar á lestrarörðugleikum nemenda, gera tillögur að íhlutun og sjá oft um framkvæmd hennar og eftirfylgni. Læsisfræðingarnir stýra gjarnan læsisteymi skóla og sjá um starfsþróun varðandi læsiskennslu.

 


 

En hverjir eru þá læsisfræðingar kann einhver að spyrja. Kennsla læsisfræða er á meistarastigi, við Háskólann á Akureyri fellur námsbrautin Nám og læsi - lestrarfræði undir þessa skilgreiningu sem og námsbrautin Mál og læsi í Háskóla Íslands, auk þess sem fjölmargir erlendir háskólar bjóða upp á nám í læsisfræðum. Þeir sem lokið hafa námi á þessum brautum eru með sérþekkingu á kennsluaðferðum, hugtökum, kenningum og rannsóknum á sviði máls og læsis og eru því læsisfræðingar. Þetta starfsheiti hefur þó ekki öðlast sess í íslensku samfélagi en því vill nýstofnað Félag læsisfræðinga á Íslandi breyta.

Á stofnfundinum voru lögð fram drög að lögum félagsins þar sem markmið þess eru skilgreind og eins og flestum má vera ljóst þá er megin tilgangur félagsins að efla læsi á Íslandi. Fyrstu verkefni FLÍS verða að efla samvinnu og samráð læsisfræðinga sem og samstarf við aðra fagaðila sem vilja stuðla að bættu læsi á Íslandi. Þá er jafnframt lögð áhersla á að miðla starfsþróunartækifærum til félagsmanna og að efla faglega umræðu um læsi. Síðast en ekki síst þá er stefnt að viðurkenningu starfsheitisins læsisfræðingur og að þeir verði starfandi í hverjum skóla eða að lágmarki í hverju sveitarfélagi svo tryggt sé að nemendur fái læsiskennslu við hæfi.

Ný kjörin stjórn félagsins hvetur alla þá kennara sem lokið hafa mastersnámi í læsisfræðum, eða að lágmarki 60 ECTS einingum í læsisfræðum, að ganga í félagið en umsóknir skulu sendar á netfangið laesisfraedingar@gmail.com.