Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum samþykkir kjarasamning
Fréttir|28. maí 2018

Samningurinn var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Úrslit í allsherjaratkvæðagreiðslu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum liggja fyrir.
Á kjörskrá voru 484. Af þeim greiddu 240 atkvæði eða 49,6% félagsmanna og eru úrslit sem hér segir:
- Já 87,92%
- Nei 10,00%
- Auðir 2,08%
Samningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.