Félag grunnskólakennara vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara

Fréttir|8. nóvember 2016

Stjórn og samninganefnd Félags grunnskólakennara (FG) vísaði í gær kjaradeilu félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Í bréfi sem sent var félagsmönnum FG í gær segir samninganefnd hafi metið stöðu mála þannig að of mikið hafi borið í milli til að samningar gætu tekist á næstunni.

Umrætt bréf til félagsmanna í heild má lesa hér:

„Fyrir stundu vísaði stjórn og samninganefnd FG kjaradeilu sinni við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Í ljósi þess að skriður komst á viðræður í síðustu viku var ákveðið að reyna til þrautar að ná samningi í dag. Félag grunnskólakennara hefur í þessum viðræðum lagt áherslu á að ná fram meiri launahækkunum en voru í felldum samningum ásamt breytingu á vinnuumhverfi. Því miður náðist ekki samkomulag um nýjan kjarasamning og er það mat samninganefndar að of mikið beri í milli aðila til að samningar hefðu tekist á næstunni.

Eins og fyrr segir er málið því komið til ríkissáttasemjara sem tekur við verkstjórn samningaviðræðnanna í samræmi við lög þar um. Framundan er hið formlega ferli og mun sáttasemjari boða báða samningsaðila til fundar til að kynna sér stöðu mála. Í framhaldi verða samningaviðræður undir hans stjórn. Á næstu dögum munum við hitta trúnaðarmenn á fundum og fara yfir stöðuna.“