Félag grunnskólakennara vill þjóðarsátt um hækkun launa

Alvarlegur vandi blasir við grunnskólum landsins þar sem nýliðun grunnskólakennara er afar lítil og verði ekkert að gert mun vandinn aukast stórlega á næstu árum. Stórsókn í menntamálum eru orðin tóm nema laun grunnskólakennara verði gerð samkeppnishæf launum annarra sérfræðinga með sambærilega menntun.
Sjöundi aðalfundur Félags grunnskólakennara haldinn 17. og 18. maí 2018 skorar á alla sem láta sig skólastarf varða að mynda þjóðarsátt um hækkun launa og bætt starfskjör grunnskólakennara og skólastjórnenda, því einungis þannig verða skólarnir samkeppnishæfir um vinnuafl og aðsókn í kennaranám mun aukast. Fundurinn skorar á ríki og sveitarfélög að gera laun grunnskólakennara samkeppnisfær við laun annarra sérfræðinga á opinberum og almennum markaði.
Alvarlegur vandi blasir við grunnskólum landsins þar sem nýliðun grunnskólakennara er afar lítil og verði ekkert að gert mun vandinn aukast stórlega á næstu árum. Stórsókn í menntamálum eru orðin tóm nema laun grunnskólakennara verði gerð samkeppnishæf launum annarra sérfræðinga með sambærilega menntun.
Aðalfundur Félags grunnskólakennara undirstrikar að átak verði gert í jöfnun launa á milli almenns og opinbers vinnumarkaðar í samræmi við sameiginlega stefnu aðila um að laun og önnur kjör hjá hinu opinbera séu samkeppnisfær, sbr. 7. gr. um jöfnun launa í samkomulagi um breytingar á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna dags. 19. september 2016.
Að lokum skorar fundurinn á Samband íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd þeirra að ganga frá kjarasamningum við Félag grunnskólakennara sem allra fyrst en félagið hefur verið með lausan kjarasamning frá 1. desember 2017. Þessi staða skapar óvissu meðal félagsmanna og er skaðlegt skólastarfi í landinu.
Sjá ályktanirnar í heild sinni hér fyrir neðan.
ÁLYKTUN UM ÞJÓÐARSÁTT UM LAUN OG STARFSKJÖR GRUNNSKÓLAKENNARA OG SKÓLASTJÓRNENDA
Sjöundi aðalfundur Félags grunnskólakennara haldinn 17. og 18. maí 2018 skorar á alla sem láta sig skólastarf varða að mynda þjóðarsátt um hækkun launa og bætt starfskjör grunnskólakennara og skólastjórnenda því einungis þannig verða skólarnir samkeppnishæfir um vinnuafl og aðsókn í kennaranám mun aukast.
ÁLYKTUN UM LAUN GRUNNSKÓLAKENNARA
Sjöundi aðalfundur Félags grunnskólakennara, haldinn 17. - 18. maí 2018, skorar á ríki og sveitarfélög að gera laun grunnskólakennara samkeppnisfær við laun annarra sérfræðinga á opinberum og almennum markaði. Launagögn Hagstofu Íslands sýna að meðallaun grunnskólakennara ná ekki meðallaunum í landinu.
Alvarlegur vandi blasir við grunnskólum landsins þar sem ekki hefur tekist að fylla allar stöður grunnskólakennurum. Nýliðun grunnskólakennara er afar lítil og verði ekkert að gert mun vandinn aukast stórlega á næstu árum. Stórsókn í menntamálum eru orðin tóm nema laun grunnskólakennara verði gerð samkeppnishæf launum annarra sérfræðinga með sambærilega menntun.
Sjöundi aðalfundur Félags grunnskólakennara undirstrikar að átak verði gert í jöfnun launa á milli almenns og opinbers vinnumarkaðar í samræmi við sameiginlega stefnu aðila um að laun og önnur kjör hjá hinu opinbera séu samkeppnisfær, sbr. 7. gr. um jöfnun launa í samkomulagi um breytingar á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna dags. 19. september 2016. Mikilvægt er að vinna á grundvelli skýrslu samráðshóps sem falið var að meta hvaða tölfræðigögn og aðferðir þurfi að liggja til grundvallar við jöfnun launa milli markaða og ljúka þeirri vinnu fyrir árslok. Mikilvægt er að hægt verði að taka skref í átt að jöfnun launa milli vinnumarkaða í næstu kjarasamningum stéttarfélaga opinberra starfsmanna við ríki og sveitarfélög.
ÁLYKTUN UM STÖÐU SAMNINGAMÁLA
Sjöundi aðalfundur Félags grunnskólakennara, haldinn 17.-18. maí 2018, skorar á Samband íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd þeirra að ganga frá kjarasamningum við Félag grunnskólakennara sem allra fyrst.
Félag grunnskólakennara hefur verið með lausan kjarasamning frá 1. desember 2017 sem skapar óvissu meðal félagsmanna og er skaðlegt skólastarfi í landinu.