Félag grunnskólakennara skrifar undir viðræðuáætlun

Fréttir|19. október 2021

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, og Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambandsins, hafa skrifað undir samkomulag um viðræðuáætlun vegna komandi kjarasamninga.

Kjaraviðræður Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefjast formleg í byrjun nóvember.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í samkomulagi um viðræðuáætlun sem Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir í morgun. 

Viðræðuáætlunin er gerð með það að markmiði að samningar náist fyrir 31. desember næstkomandi en þá rennur núgildandi kjarasamningur grunnskólakennara út.