Félag grunnskólakennara skrifar undir kjarasamning

Fréttir|23. ágúst 2016

Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning síðdegis í dag. Kjarasamingurinn byggir á fyrri samningi sem félagsmenn FG felldu í atkvæðagreiðslu í byrjun júní síðastliðinn.

Það er mat samninganefndar og svæðaformanna FG að með hinum nýja kjarasamningi séu helstu vankantar fyrri samnings lagaðir. Auk breytinga á texta kjarasamnings eru ákveðin atriði skýrð og við bætast nokkur ný efnisatriði. 

Kynning á hinum nýja kjarasamningi verður send félagsmönnum FG með tölvupósti á morgun, miðvikudaginn 24. ágúst. Þá verður samningurinn kynntur trúnaðarmönnum félagsins á næstu dögum og í framhaldinu verður efnt til opinna funda fyrir félagsmenn.

Nánari upplýsingar um kynningu samningsins og fundahöld verða birtar um leið og þær liggja fyrir.