Félag grunnskólakennara hefur skrifað undir nýjan kjarasamning

Fréttir|31. maí 2016

Félag grunnskólakennara (FG) skrifaði í gærkvöld undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Að baki eru miklar fundarlotur síðustu vikur en unnið var samkvæmt viðræðuáætlun. 

Gildistími hins nýja samnings er frá 1. júní 2016 til 31. mars 2019. Það er mat samninganefndar og svæðaformanna FG að með nýjum kjarasamningi séu helstu vankantar vinnumats lagaðir í ljósi reynslu síðasta skólaárs. 

Laun hækka sem hér segir: 

  • 1. júní 2016 um 3,5%
  • 1. júní 2017 um 3%
  • 1. júní 2018 um 3%

Að auki er eingreiðsla 1. febrúar 2019 að upphæð 51.900 krónur. 

Meðal annarra ákvæða hins samnings er að framkvæmd gæslu verður færð til fyrra horfs – eins og var fyrir kjarasamninginn 2014. Þá verður ákvæði um kennsluskyldu breytt á samningstímanum og við bætist heimild til að safna allt að fimm frídögum á skólaári vegna yfirvinnu. 

Nýi kjarasamningurinn fer nú í kynningu, fundað verður með trúnaðarmönnum FG í dag og næstu daga, og einnig er áformað að halda opinn fund á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15 næstkomandi fimmtudag. Fundurinn verður sendur út á netinu og verður fundarstaður kynntur innan skamms. 

Kosið verður rafrænt um nýja kjarasamninginn og er ráðgert að atkvæðagreiðslan fari fram dagana 2. til 9. júní 2016.