Félag framhaldsskólakennara auglýsir eftir starfsmanni

Fréttir|27. maí 2016

Félag framhaldsskólakennara auglýsir eftir þjónustufulltrúa í fullt starf á skrifstofu félagsins.

Menntunarkröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi og er æskilegt að viðkomandi hafi leyfisbréf sem framhaldsskólakennari.

Reynsla: Kennslureynsla í framhaldsskóla kostur og þekking á opinberri stjórnsýslu.

Verkefni: Aðstoð við félagsmenn er varðar réttindamál og túlkun kjarasamninga félagsins. Undirbúningur funda, samskipti við félagsdeildir og aðstoð við kjarasamningagerð sem og annað sem til fellur á hverjum tíma.

Hæfniskröfur: Færni í mannlegum samskiptum, þjónustulipurð og létt lund. Vinnutími getur verið óreglulegur en að meðaltali er miðað við 40 klst vinnuviku.

Félag framhaldsskólakennara er eitt aðildarfélaga Kennarasambands Íslands sem er til húsa í Kennarahúsinu að Laufásvegi 81.

Til að byrja með er ráðið í stöðuna til árs með möguleika á framhaldsráðningu. Umsóknarfrestur er til 8. júní 2016 og skal senda ferilskrá á netfangið gudridur@ki.is þar sem koma fram upplýsingar um menntun, reynslu og önnur félagsstörf sem og umsagnaraðila.

Viðkomandi þarf helst að hefja störf 1. ágúst nk.