Fast skotið í setningarræðu
Aðalheiður Steingrímsdóttir, fráfarandi formaður Félags framhaldsskólakennara, setti aðalfund félagsins nú fyrir stundu. Setningaræða hennar bar þess merki að framhaldsskólakennarar eru nú í verkfalli til að sækja leiðréttingu á kjörum. Fram kom að laun þeirra hafa síðustu ár dregist verulega aftur úr viðmiðunarstéttum.
„Það er með öllu ólíðandi að kennarastéttin sé sett í þá stöðu reglubundið að vera neydd til að grípa til róttækra aðgerða til að rétta hlut sinn og skólanna vegna sinnuleysis stjórnvalda... Við höfum líklega aldrei áður staðið frammi fyrir svona stórum vanda“.
Aðalheiður skaut í ræðu sinni þungum skotum að Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra, sem hefur að undanförnu ítrekað viðrað hugmyndir sínar um styttingu framhaldsskólanámsins.
„Flumbrugangurinn hjá menntamálaráðherra og andvaraleysið í sambandi við menntamálin og baráttu okkar nær alveg nýjum hæðum þessa dagana. Eina framtíðarsýn ráðherra til handa skólunum eru markmið um að stytta námstíma og meiri framleiðni. Allir sem setja sig eitthvað inn í málin skilja að orðið framleiðni er hér aðeins feluorð um áframhaldandi niðurskurð í rekstri.“
Sú forgangsröðun sé hlægileg þegar skólastarfið sjálft sé í hættu vegna sífellds niðurskurðar og sparnaðar.
„Og þeir sem tala um kerfisbreytingar með því að skera niður námið til að rétta af rekstur skólanna og kjörin eru á algerum villigötum þegar hugsað er um þá milljarða sem búið er að kreista út úr framhaldsskólakerfinu í mörg ár með niðurskurði“ sagði Aðalheiður og bætti við að nú þyrfti að draga línuna í sandinn og segja hingað og ekki lengra.