Fáryrði, grikkur og mikilvægi þess að dansa

Það má gera sér ýmislegt til dundurs þegar vinnudegi í skólanum lýkur. Við höfum tekið saman ofurlítinn lista af áhugaverðu efni sem getur hugsanlega nýst í starfi en er líka alveg tilvalið til að stytta sér stundir og gleðjast yfir.
Ritstjórn Skólavörðunnar mælir með þessu
Flimtan og fáryrði
(Hlaðvarp)
Þeir Gunnlaugur Bjarnason íslenskufræðingur og Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum fræðum, halda úti hlaðvarpinu þar sem gerð er tilraun til að miðla íslenskum miðaldabókmenntum og nýlegum rannsóknum á þeim til áheyrenda í léttum dúr þannig að þeim finnist þeir ekki staddir í skólastofu heldur í léttu spjalli í kaffiboði. Markmiðið er að kveikja áhuga á fornum bókmenntum. Heiti hlaðvarpsins er sótt til Þórhildar skáldkonu sem var rekin úr brúðkaupi fyrir flimtan og fáryrði og þeir félagar reyna að taka hana sér til fyrirmyndar. Þættirnir eru aðgengilegir á Spotify og Buzzsprout.enn ekki fengið dvalarleyfi í Trump-landi og berst ötullega fyrir réttindum innflytjenda.
---
Skoðum heiminn
(Leikur og landafræði)
Ferðalög eru víst ekki málið þetta árið, eins og allir vita. Hins vegar getur útþrá gert vart við sig og löngun til að skoða heiminn. Þá getur verið snjallt að fara í landafræði-giskleik á vefnum Geoguessr.com. Þátttakandinn lendir einhvers staðar úti í heimi og þarf að fikra sig áfram, jafnvel „ferðast“ marga kílómetra, reyna að átta sig á landslagi og lesa á skilti til að sjá hvar hann er staddur. Það getur líka verið gaman að spila leikinn í hóp þar sem allir vinna saman. ginn.
---

Parísarsögur
(RÚV)
Sjónvarpsþættir á RÚV
Skemmtileg frönsk þáttaröð með nokkuð dökkum húmor þar sem fylgst er með lífi fimm kvenna sem segja hver sína söguna í ástarborginni París. Leiðir þeirra liggja saman á mismunandi tímum og oft með skoplegum hætti. Þættirnir eru að klárast en eru aðgengilegir á Sarpinum. endum.
---
Ken Robinson
(TED og Youtube)
Börn eiga að fá að dansa á hverjum degi. Það er jafnmikilvægt og að þau læri stærðfræði. Ken Robinson er skólafólki afar kunnugur en þessi virti og vinsæli fræðimaður lést fyrir skömmu, sjötugur að aldri. Hægt er að mæla með fyrirlestrum Robinson á TED, einkum „Do schools kill creativity?“ en sá fyrirlestur er sá allra vinsælasti í sögu TED. Horft hefur verið á hann 66 milljón sinnum og auk þess hafa 20 milljónir horft á sama fyrirlestur á YouTube.
---
Glæpur við fæðingu
(Ævisaga, Angústúra)
Bókin Glæpur við fæðingu er eftir Trevor Noah sem margir þekkja sem uppistandara og þáttastjórnanda The Daily Show. Noah segir frá uppvexti sínum í Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Titill bókarinnar vísar til þess að Noah er sonur hvíts Svisslendings og svartrar Xhosa-konu og tilvist hans er sönnun þess að foreldrar hans frömdu glæp. Noah skrifar sögu sína með gamansömum stíl þótt lesandinn skynji alvöruna sem býr undir. Mögnuð ævisaga og afskaplega vel þýdd af Helgu Soffíu Einarsdóttur. sefni.
---
Social Dilemma
(Netflix)
Hreint út sagt sláandi heimildamynd um hvernig samfélagsmiðlarnir tengja okkur ekki bara saman heldur stjórna lífi okkar og hafa áhrif á stjórnmál og fleira í heiminum. Í myndinni koma fram margir háttsettir starfsmenn samfélagsmiðlafyrirtækjanna og er frásögn þeirra oft og tíðum hrollvekjandi. Mynd sem vert er að gefa gaum. ttu.
---
Grikkur
(Benedikt bókaútgáfa)
Grikkur er önnur bók Domenico Starnone, eins fremsta skáldsagnahöfundar Ítala. Á vef útgáfunnar kemur fram að bókin fjallar um myndlistarmann á áttræðisaldri sem deilir íbúð í fáeina sólarhringa með fjögurra ára dóttursyni sínum á meðan einkadóttir hans og tengdasonur fara í ráðstefnuferð. Samspil hans við dóttursoninn, dótturina og tengdasoninn er fullt af grátbroslegum uppákomum. Fortíðardraugar fara á kreik og tilvistarkreppa aldraðs listamanns snýst upp í eins konar einvígi við dóttursoninn, sem reynist honum ofjarl á flestum sviðum og gerir honum óvæntan grikk. Grikkur er fljótlesin skáldsaga og virkilega góð skemmtun sem skilur mikið eftir sig.n.
Meðmælin birtustt í Skólavörðunni, 1. tbl. 2020