Farsæld og vellíðan á að vera í fyrirrúmi í leikskólum

Sigurður Sigurjónsson hefur gegnt formennsku í Félagi stjórnenda leikskóla síðan árið 2018. Félagsmenn FSL eru um 450 talsins og alltaf nóg að gera hjá formanninum.
Þótt félagið sé ekki ýkja stórt í samanburði við önnur aðildarfélög innan KÍ er alltaf meira en nóg að gera. Kjarasamningagerð, vinnuaðstæður í leikskólum, betri vinnutími, lífeyrismál, fagleg málefni og samskipti við félagsfólk eru meðal verk efna á borði formanns FSL. Ritstjórar Skólavörðunnar spurðu Sigurð hvaða málefni brenna helst á stjórnendum leikskólanna.
Stærsti málaflokkurinn er alltaf gerð kjarasamninga og framkvæmd þeirra. Síðasti kjara-samningur okkar við sveitarfélögin tók gildi 1. október síðastliðinn sem hefur í för með sér töluverða vinnu við að aðstoða félagsfólk og launafulltrúa sveitarfélaganna að leiðrétta og uppfylla atriði samningsins,“ segir Sigurður.
Annað sem hvílir þungt á stjórnendum leikskólanna eru sífellt stærri og fleiri verkefni. „Dagleg verkefni okkar fólks eru fleiri en áður og líka umfangsmeiri. Við sjáum að rekstrarskilyrði eru víða erfið, fjármagnið er of lítið og uppi eru kröfur um sparnað sem hefur í för með sér að starfs-mannahaldið verður þyngra en áður.
Þá eru fjöldamargir leikskólar í framkvæmdum vegna vandamála er lúta að loftgæðum, svo sem rakaskemmdum og myglu. Þessi glíma hefur mikil áhrif á starfsumhverfi leikskólanna, stjórnendur, kennara, starfsfólk og auðvitað börnin. Augljós mælikvarði á starfsumhverfi sem er ekki gott er að erfitt getur reynst að fá stjórnendur til starfa, færri sækja um lausu stöðurnar og fólk staldrar stutt við í starfi,“ segir Sigurður.
Blekið vart þornað þegar næsta törn hefst
FSL skrifaði undir stuttan kjarasamning nú á haustdögum, samning sem gildir fram á næsta vor. Sigurður segir í mörg horn að líta í komandi kjarasamningsgerð. Blekið er vart þornað á nýjum samningi þegar vinna við þann næsta er hafin. Spurður um megináherslurnar í komandi viðræðum segir Sigurður:
„Við höfum í samningaviðræðum undangenginna ára unnið markvisst með samninganefnd sveitarfélaganna að jöfnun launamyndandi þátta við hin kennarafélögin. Þetta eru þættir sem snúa að mati á reynslu og menntun og ánægjulegt að greina frá því að í síðustu þremur kjaralotum höfum við náð árangri við að jafna þessa þætti. Þetta náðist í áföngum og hefur í för með sér að við eigum nú auðveldara með að fara í samtal um sameiginlegar kröfur aðildarfélaga KÍ sem semja við sveitarfélögin.”
Samninganefnd FSL við undirritun síðasta kjarasamnings
Sigurður segir jafnframt að nú standi yfir undirbúningur að samtali í samstarfsnefnd FSL og SNS um stjórnunarumfang aðstoðarleikskólastjóra og hvernig hægt sé að meta fjölbreytta starfsreynslu stjórnenda. „Það er afar mikilvægt að nálgast þetta verkefni af alvöru. Við erum að viða að okkur upplýsingum með það að markmiði að greina stöðuna betur með okkar fólki. Við munum síðan fara með þessi gögn inn í samstarfsnefndina.
Verkefni á borði stjórnandans hafa aukist verulega síðustu ár en samhliða því hefur ekki verið gefinn meiri tími til að sinna verkefnunum. Af þessari ástæðu hafa FSL og SNS samþykkt að fara yfir þessi mál og þau áform koma fram í yfirlýsingu og verkáætlun beggja aðila. Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu fyrir 1. mars á næsta ári.“
Fleira er í bígerð þegar horft er til komandi kjaraviðræðna. „Það er rétt, við eigum enn eftir að ganga frá fyrrgreindum atriðum í verkáætlun núgildandi samnings. Þá munum við eiga samræður við önnur aðildarfélög innan KÍ og ekki síst safna ábendingum frá félagsfólki. Þegar þetta er komið á borðið mun samninganefnd FSL rýna gögnin og í kjölfarið setja fram samningsmarkmið fyrir komandi kjaraviðræður – þetta vinnulag er í samræmi við lög FSL,“ segir Sigurður.
Kjaramálin eru ekki einu verkefni formanns og stjórnar FSL. Sigurður segir að nú standi yfir undirbúningur að fræðsludagskrá sem verði í gangi fram á næsta vor. „Við erum í raun að halda áfram okkar faglega starfi og ætlum að bjóða upp á örfyrirlestra á netinu þar sem fjallað verður um fjölbreytt efni sem skipta okkar félagsfólk máli. Þetta form hefur reynst vel og þessir viðburðir jafnan vel sóttir. Þá verður að líkindum efnt til stærri námskeiða með innlendum sem erlendum aðilum,“ segir Sigurður og bætir við að dagskráin verði kynnt innan skamms.
Styttingin víða þung í vöfum
Nú hefur vinna við betri vinnutíma starfsfólks í leikskólum víða staðið yfir síðan í byrjun árs 2021. Fregnir hafa borist um að misjafnlega gangi að koma verkefninu á legg; sums staðar gangi þetta vel en annars staðar miður vel.
„Betri vinnutími er verkefni sem hefur legið þungt á stjórnendum síðustu tvö árin. Ástæðan fyrir þessu er í raun einföld; framkvæmdin mátti ekki kosta krónu og á sama tíma mátti heldur ekki skerða þjónustu. Við finnum það hjá okkar félagsfólki að þetta verkefni er þungt í vöfum, og víða þykir það mun erfiðara en þau stóru verkefni sem þurfti að sinna í heimsfaraldrinum – en þá þurftu stjórnendur oft að hafa hraðar hendur við að endurskipuleggja skólastarfið í takt við atburði dagsins,“ segir Sigurður og bætir við að ástandið kunni að batna á komandi misserum.

Það er afar gott að sjá og finna að rekstraraðilar séu að leita leiða til að auka farsæld og vellíðan barna og fullorðinna í leikskólum landsins
„Fjölmörg sveitarfélög hafa eða eru að breyta reglum um dvalartíma barna í leikskólum. Auk þess er sums staðar verið að fjölga dögum yfir árið þar sem leikskólinn er lokaður. Þessar breytingar munu án vafa auðvelda stjórnendum að skipuleggja og koma betri vinnutíma í framkvæmd.“ Sigurður bendir jafnframt á reiknivél sem er að finna á vef Kennarasambandsins en þar er hægt að meta mögulegan kostnað við styttingu vinnuvikunnar. „Það er líka hægt að skoða hvernig draga megi úr kostnaði, með tilliti til styttri dvalar- eða starfstíma.“
Dvalartími barna hefur einmitt verið töluvert í umræðunni og fram hefur komið að viðveran sé einna lengst í íslenskum leikskólum. Þetta kemur fram í tölum frá OECD. „Við höfum í mörg ár bent á þennan vanda. FSL hefur átt aðild að starfshópum sem vinna að þessum málaflokki víða um land. Sú vinna hefur haft í för með sér að við erum að sjá breytingar hér og þar. Sjálfur sat ég í starfshópi um skipulag og starfsumhverfi leikskóla í Kópavogi og eftir þá vinnu ákvað sveitarfélagið að breyta gjaldskrá og auka sveigjanleika í dvalartíma með það að markmiði að stuðla að aukinni vellíðan barna,“ segir Sigurður.
Hann segir þessa breytingu til þess fallna að draga úr álagi í leikskólum og nú sé útlit fyrir að fleiri sveitarfélög muni taka skref í þessa átt, svo sem Akureyri og Garðabær. „Hvort þetta sé eina leiðin, eða sú réttasta, veit ég ekki en það er afar gott að sjá og finna að rekstraraðilar séu að leita leiða til að auka farsæld og vellíðan barna og fullorðinna í leikskólum landsins. Það er auðvitað stóra málið,“ segir Sigurður.
Stytting vinnuviku í samfélaginu getur einnig verið liður í að stytta viðveru yngstu barna samfélagsins í leikskólum. „Við þurfum að horfa á þessa hluti með augum barnsins og finna út hvað er því fyrir bestu er kemur að farsæld og vellíðan. Það má þó segja að eðlilegasta skrefið gæti verið að breyta lögum um 40 stunda vinnuviku – og setja styttingu vinnuvikunnar í lög þannig að allir launþegar landsins nytu hennar. Þá mætti fastlega gera ráð fyrir að slíkt hefði áhrif á lengd skóladagsins hjá leikskólabörnum.“
Hægt að hægja á hröðum vexti
Við víkjum talinu að sjálfu leikskólakerfinu sem byggir vissulega á sterkum faglegum stoðum en hefur vaxið á ógnarhraða síðustu árin. Krafan um að æ yngri börn fái pláss hefur orðið háværari síðustu misserin. „Leikskólinn hefur vaxið mjög og miklu hraðar en æskilegt er enda gengur afar brösuglega að uppfylla lagaskylduna um að 2/3 starfsmannahópsins séu kennarar. Þetta er staðreynd þótt vissulega hafi náðst að fjölga kennaranemum töluvert með markvissu átaki. Hér þarf að bæta enn frekar í og þá skiptir miklu að háskólarnir sem mennta kennara fái nægilegt fjármagn. Við höfum því miður séð nemendum vísað frá vegna fjöldatakmarkana.“

Við þurfum að horfa á þessa hluti með augum barnsins og finna út hvað er því fyrir bestu er kemur að farsæld og vellíðan
Sigurður segir að vel megi halda aftur af hraðri stækkun leikskólastigsins. „Það er mögulegt ef viljinn er fyrir hendi. Á sama tíma verðum við hjá Kennarasambandinu og sveitarfélögunum að vinna saman að því marki að lög um hlutfall kennara í starfsmannahópnum séu uppfyllt.“
Leikskólastigið er ekki skylduverk efni sveitarfélaganna og á almennum vinnumarkaði er oft talað um leikskólana sem þjónustustofnanir. „Við höfnum auðvitað þessari umræðu enda er leikskólinn fyrsta skólastigið samkvæmt 1. grein laga um leikskóla. Í 2. grein sömu laga er fjallað um markmið leikskólanna en hvergi koma fyrir orðin þjónusta eða þjónustustofnun. Skipulag leikskólastarfs miðast við uppeldi, umönnun og menntun barna.“
Dropinn holar steininn
Starfskjör og vinnuumhverfi eru mikilvægir þættir í störfum stjórnenda sem annarra. Hvaða árangur hefur náðst í vinnuumhverfismálum á síðustu misserum og hvað er í bígerð? „Við eigum mikið óunnið í vinnuumhverfismálum og því miður er enn langt í land með að vinnuumhverfi barna og fullorðinna sé viðunandi í öllum leikskólum. FSL hefur unnið ötullega að því að fræða stjórnendur, sveitarstjórnarfólk, ráðherra og stjórnvöld um hvaða vandamál eru helst uppi er kemur að vinnuumhverfi, og vinnurými barna og fullorðinna í leikskólum.
Víða eru starfsaðstæður þannig að þær eru beinlínis brot á reglum. Því miður höfum við talað fyrir daufum eyrum og lítið hefur þokast að okkar mati. En dropinn holar steininn og við höldum verkinu áfram. Meðal annars höfum við bent sveitarfélögum og rekstraraðilum á reglur um húsnæði vinnustaða sem alltof víða eru ekki virtar. Ég vil nýta tækifærið og hvetja stjórnendur til að fara yfir ástandið í sínum skólum og ég er tilbúinn að ræða málin við fulltrúa sveitarfélaganna svo hægt sé að gera áætlanir um betrumbætur þannig að markmiðum byggingaeglugerða verði náð.“
Sigurður segir vert að nefna að á sama tíma og ástandið sé slæmt í mörgum leikskólum þá sé alltaf verið að byggja einn og einn nýjan skóla þar sem vinnuaðstæður séu í samræmi við kröfur nútímans. „Viðhaldi skólabygginga hefur verið ábótavant víða og þá kemur upp vandi sem mörg sveitarfélög standa frammi fyrir, svo sem vond loftgæði, raki og mygla – en síðastnefndu atriðin geta haldið leikskólum í gíslingu á meðan unnið er að lausn.“