Farsæld barna rædd við fulltrúa aðalritara SÞ

Dr. Najat Maalla M‘jid, sérstakur fulltrúi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, fékk kynningu á starfsemi Kennarasambandsins fyrr í vikunni. Formaður og varaformaður KÍ tóku á móti þessum mæta gesti.
Kennarasambandið fékk heimsókn nú í vikunni þegar Dr. Najat Maalla M‘jid, sérstakur fulltrúi aðalritara Sameinuðu þjóðanna vegna ofbeldis gagnvart börnum, kom í Borgartúnið ásamt fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis.
Najat eins og hún vill láta kalla sig hefur tekið ófáa slagina fyrir réttindi barna í gegnum tíðina, en hún er upprunalega frá Marokkó og starfaði fyrst sem barnalæknir. Hún hefur unnið að fjölda verkefna er varða réttindi og velferð barna og stofnaði m.a. samtök í heimalandi sínum sem vinna að því að tryggja velferð og réttindi barna sem búa á götunni. Hún tók við núverandi starfi sínum árið 2019, af Mörtu Santos Pais (eins af höfundum Barnasáttmála SÞ).
Í heimsókninni fékk Najat stutta kynningu á starfsemi Kennarasambandsins og í framhaldinu var rætt um aðkomu kennara að farsæld barna, bæði þau verkefni sem kennarar sinna nú og þeim áskorunum sem felast í framtíðinni tengt vinnu við farsældarfrumvarp mennta- og barnamálaráðherra