Farsæld barna: Könnun fyrir fagfólk sem starfar með börnum

Fréttir|22. maí 2023

Mennta- og barnamálaráðuneytið óskar eftir þátttöku fagfólks skólasamfélagsins við rannsókn í tengslum við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Reynsla fagfólks af núverandi þjónustu er mæld þannig að síðar verði hægt að meta hvort breyting hafi orðið á þjónustunni.

Um þessar mundir er að hefjast rannsókn á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins í tengslum við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sem tóku gildi 1. janúar 2022. Rannsóknin er unnin af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og hefur það meginmarkmið að leggja grunn að mati á árangri laganna. Einn liður í rannsókninni er að mæla reynslu fagfólks af núverandi þjónustu þannig að síðar verði hægt að meta hvort breyting hafi orðið á þjónustunni. Þetta er gert með því að bjóða þeim sem starfa með börnum eða vinna að málefnum barna í mennta-, félags-, dóms- og heilbrigðiskerfi að svara könnun um málefnið. Spurt er um starfið og reynslu af þeirri þjónustu sem börnum er veitt.

Óskað er eftir þátttöku félagsmanna Kennarasambandsins. Hér er hægt að svara könnuninni.

Aðeins um könnunina

Könnunin er nafnlaus og Félagsvísindastofnun gætir þess að útilokað verði að rekja svör til einstaklinga. Hægt er að sleppa því að svara einstaka spurningum og ekki þarf að svara spurningalistanum í heild. Könnunin og úrvinnsla hennar er gerð í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Hægt er að hafa samband við Guðbjörtu Guðjónsdóttur, verkefnisstjóra hjá Félagsvísindastofnun, með því að senda póst á gudbjort@hi.is eða hringja í síma 525-5437, ef frekari upplýsinga er óska

Allt fagfólk sem kemur að þjónustu við börn er hvatt til að taka þátt. Góð þátttaka er mjög mikilvæg til að niðurstöður könnunarinnar verði sem áreiðanlegastar og nýtist sem best til að bæta þjónustu við börn.