Farsæl skólaganga allra barna

Fréttir|18. nóvember 2022

Mennta- og barnamálaráðuneytið hélt ráðstefnu um farsæla skólagöngu allra barna mánudaginn 14. nóvember. Ráðstefnan var vel sótt með 260 ráðstefnugestum og tæplega tvö þúsund í streymi. Nú hefur ráðuneytið birt upptöku frá ráðstefnunni.

Hægt er að horfa á upptöku af erindum og pallborðsumræðum hér. 

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra kynnti nýlega áform um ný heildarlög um skólaþjónustu. Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að í þeirri vinnu gegni „samráð við hlutaðeigandi lykilhlutverki til að koma sem best til móts við þarfir skólasamfélagsins og tengdra þjónustukerfa.“ 

Með ráðstefnunni tókst að ná til hlutaðeigandi. „Þeim 500 sem skráðu sig á ráðstefnuna, á staðnum og í streymi, hefur verið boðið að taka þátt í samráðshópum um mótun skólaþjónustu til framtíðar sem munu funda á næstu vikum. Áður höfðu 500 einstaklingar lýst yfir áhuga á þátttöku í samráðshópunum.“

 „Menntun er algjört lykilatriði til að vera farsæll einstaklingur, alveg eins og það er mikilvægt að búa við góða velferð og fjárhagslegt öryggi,“ sagði Ásmundur í lokaorðum. „Það er það sem við erum að reyna að kalla fram með farsældarlöggjöfinni: Þú getur ekki slitið eitt frá öðru, þetta hangir allt saman á sömu spýtunni.“

Lokaorð Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, með orðaskýi frá ráðstefnugestum í baksýn yfir þau orð sem koma í huga þegar hugsað er um farsæla skólagöngu barna