Farsæl kröfuganga og vöfflukaffi á 1. maí
Fréttir|1. maí 2024

Kennarar, skólastjórnendur og fulltrúar KÍ fjölmenntu í kröfugöngu á baráttudegi verkalýðsins í dag, 1. maí.
Sterk hreyfing – sterkt samfélag var yfirskrift baráttudags verkalýðsins þetta árið. Kröfugöngur fóru fram víða um land í dag. Fulltrúar Kennarasambandsins örkuðu Skólavörðustiginn í höfuðborginni í dag og fögnuðu því sem áunnist hefur á sama tíma og barist var fyrir bættum kjörum og starfsaðstæðum.
Eftir útifund á Ingólfstorgi var svo haldið í Borgartúnið þar sem félagsfólk kom saman í vöfflukaffi, lúðrasveitartónleika og spjall í góðum félagsskap. Hér fyrir neðan má sjá myndir af herlegheitum dagsins.