Fara sveitarfélög á svig við kjarasamninga?

Fréttir|12. júní 2015

Vegna fyrirætlana sveitarfélaga um að skerða sumarlaun tónlistarskólakennara vill Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum koma eftirfarandi á framfæri:

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) mótmælir áliti Sambands íslenskra sveitarfélaga (Sambandið) þess efnis að segja að sveitarfélögum „beri“ að skerða sumarlaunahluta tónlistarkennara vegna verkfalls félagsmanna FT sl. haust.

Skerðing sumarlaunahluta er ekki sjálfgefin. Engin fordæmi eru fyrir slíkri skerðingu hjá félagsmönnum. Þá taka útreikningar Sambandsins hvorki mið af meginreglum varðandi vinnutíma í kjarasamningi né þeirri vinnuskyldu sem kennarar hafa á sumrin og utan kennslutímabils skólanna.

Það hefur verið viðtekin venja að samið sé sérstaklega um verkfallslok í kjarasamningi aðila (þar hafa komið til eingreiðslur, samkomulag um óskert sumarlaun eða hvorutveggja). Hins vegar var umræðu þessa efnis alfarið hafnað af Samninganefnd sveitarfélaga í kjaraviðræðum aðila á miðlægu borði sl. haust og þótti FT þar hart gengið fram gegn tónlistarkennurum.

Þegar samið er um verkfallslok hefur verið horft til þess að því fylgir mikil viðbótar vinna og álag að ljúka námsönn að afloknu verkfalli. Í mörgum tilfellum gætir áhrifanna allt skólaárið í tengslum við einstaklingsnámskrár nemenda og þau markmið sem hafa verið sett fyrir skólaárið.

Eftir 5 vikna verkfall tónlistarkennara haustið 2001 var samið um 50.000 kr. eingreiðslu á miðlægu borði samningsaðila og óskert sumarlaun þrátt fyrir verkfall. Þá er skemmst frá því að segja að framhaldsskólakennarar fengu óskert sumarlaun í kjölfar verkfalls þeirra á síðasta ári. Allar götur síðan eru engin fordæmi fyrir því að ekki sé samið um óskert sumarlaun og / eða eingreiðslur í kjölfar verkfalla félagsmanna KÍ.

Sú staðreynd að samninganefnd sveitarfélaga hafi neitað að ræða verkfallslokin við samningaborðið sl. haust kemur ekki í veg fyrir að málin séu rædd heima í héraði. Viðfangsefnið og ástæður eru enn þær sömu. Þetta er málefni sem tónlistarkennarar telja sig hafa rétt á að ræða við sína vinnuveitendur.

Í þeim tilfellum að skerðing kæmi til álita getur FT ekki fallist á nálgun Sambandsins við útreikninga á skerðingu sumarlaunahluta. Þar er í meginatriðum um tvennt að ræða:

  • Það fyrra er að í stað þess að útreikningar taki mið af meginreglum í kjarasamningi aðila, eins og félagið telur eðlilegt að sé gert, þá elta útreikningarnir útfærslu skólastarfs á hverjum stað, þ.e. horft er til þess hvernig skólar hafa nýtt innbyggða möguleika í kjarasamningi til sveigjanlegs skólastarfs. Sveigjanleiki í kjarasamningum hefur hingað til þótt eftirsóknarverður af viðsemjendum FT og það skítur því skökku við að einstaklingar í þeim skólum sem nýta sveigjanleikann hvað mest ættu að gjalda þess í formi meiri skerðingar á sumarlaunahluta vegna verkfalls en ella. 
  • Seinna atriðið sem FT gerir athugasemdir við er að í útreikningum Sambands íslenskra sveitarfélaga er ekki horft til þess að tónlistarkennarar þurfa að rækja starfsskyldur sínar yfir allt árið.

Hér er um að ræða starfsdaga fyrir og eftir kennslutímabil skóla og þá vinnuskyldu sem kennarar hafa yfir sumarið, utan starfstíma skóla, varðandi símenntun og undirbúning kennslu.

Ef farin væri sú leið sem nálgun Sambands íslenskra sveitarfélaga felur í sér, þ.e. útreikningar taka hvorki mið af meginreglum í kjarasamningi né er sú vinnuskylda sem kennarar hafa á sumrin tekin inn í myndina, telur FT framkvæmdina fela í sér að launakjör tónlistarkennara væru orðin lakari en kjarasamningar kveða á um og að slíkt stangist á við lög.

Það að hafna samræðu um verkfallslokin á miðlægu samningaborði og gefa síðan út að sveitarfélögum beri að skerða sumarlaun tónlistarkennara vegna verkfallsins, algerlega óháð því hvernig unnið var úr málum á hverjum stað, ber keim af stjórnun í anda regluveldis sem byggir á átökum stéttskiptingar og það er miður.

Nútíma samfélag býður upp á fjölda stjórntækja sem bæði fræðin og reynslan hefur sýnt að séu vænlegri til árangurs og að ávinningur slíkrar nálgunar skili sér margfalt og sé í allra þágu.

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum hvetur kennara, skólastjórnendur og sveitarstjórnarmenn til samræðu og samráðs við úrlausn þess máls sem um ræðir með sanngjarna niðurstöðu og sátt að markmiði.