Fámennið er okkar styrkleiki

Jóhannes Marteinn Jóhannesson og Kolbrún Hjörleifsdóttir segja frá áhugaverðu jarðfræðiverkefni sem nemendur í Víkurskóla, Vík í Mýrdal, vinna að. Vettvangur námsins er Víkurfjara.
Áhugaverðu verkefni var hleypt af stokkunum í Víkurskóla í Vík í Mýrdal í byrjun þessa árs. Skólinn hóf rannsóknarverkefni fyrir nemendur, í samstarfi við Kötlu jarðvang og Kötlusetur í Vík, sem gengur út á að rannsaka strandlínu- og fjörubreytingar í Víkurfjöru næstu árin.
Verkefnið felur í sér að nemendur í 5.-10. bekk mæla upp sex snið í Víkurfjöru ásamt því að mæla kornastærðirnar á sandinum þar og taka ljósmyndir af formgerðunum í fjörunni. Yngstu nemendur skólans í 1.-4. bekk munu síðan stunda sjálfstæðar rannsóknir á sandinum í Víkurfjöru, dýralífinu sem þar er að finna og rannsaka rusl sem skolast þar á land.
Samstarf af þessu tagi er líklegt til að gefa verkefnum og skólastarfi aukna dýpt enda tengist skólinn fleiri sérfræðingum sem verja tíma með nemendum, en það eykur víðsýni. Skólavarðan tók hús á Víkurskóla í upphafi sumars og hitti fyrir þau Kolbrúnu Hjörleifsdóttur, kennara og verkefnastjóra GEO-skóla Víkurskóla, og Jóhannes Martein Jóhannesson, jarðfræðing hjá Kötlu jarðvangi. Þau leiða verkefnið en flestallir starfsmenn koma að verkefninu með einum eða öðrum hætti sem og allir nemendur Víkurskóla.
Hvernig gekk að móta samstarfið?
Jóhannes Marteinn: Það gekk mjög vel enda byggir það á gömlum grunni um jarðvangsskólasamstarfið.
Kolbrún: Ég er sammála að þetta gekk mjög vel enda er skólinn fámennur, boðleiðirnar stuttar og það skiptir einnig máli að sérfræðingar hafi áhuga á verkefninu og það verður að segjast að Jóhannes kom eins og fullmótaður inn í þetta og það hafa engir hnökrar verið. Ég hef séð um Jarðvangsskólann enda alltaf verið mjög áhugasöm um jarðvanginn og verið virk í honum. Ég hef haldið því á lofti að við öll sem hér búum séum undir þessari regnhlíf Kötlujarðvangs. Það er ekki nóg að koma einhverju á laggirnar, það þarf að halda því gangandi og því er gott í svona samstarfi eins og Víkurskóli á við Kötlu jarðvang að einhver einn sé tengiliður.
Jóhannes Marteinn: Það er einmitt mjög mikilvægt í slíku verkefni að hafa tengilið sem hægt er að hafa samband við þegar eitthvað er undir.
Kolbrún: Í verkefninu hefur einnig skipt máli að Elín Einarsdóttir skólastjóri er vel inni í verkefninu og er með okkur í því eins og allir. Styrkur fámennra skóla er síðan að auðvelt er að tengja slíkt verkefni við alla árganga.
Hverjar hafa verið helstu áskoranir í samstarfinu?
Jóhannes Marteinn: Þetta hefur heilt yfir gengið mjög vel. Ég man eftir einu sem kom upp en þannig er að við þurfum GPS-tæki við mælingar og þau eru ekki alls staðar til. Þá var maður hér í bænum sem var tilbúinn að lána okkur tæki en án þess hefði þetta aldrei orðið að veruleika. Í þessu tilfelli hjálpaði það okkur að boðleiðirnar eru stuttar.
Kolbrún: Samfélagið hér er þannig að fólk er vant að leggjast á eitt og við vitum hvert við getum leitað.
Hvernig hafa nemendur tekið þessu verkefni?
Jóhann Marteinn: Mjög vel, þó eðlilega sé munur á milli nemenda varðandi það hversu áhugasöm þeir eru. Þó nokkrir eru mjög áhugasamir og sumir hafa lítinn áhuga.
Kolbrún: Ég tel að COVID hafi aðeins spilað inn í hér því allir þurftu aðeins að keyra sig í gang eins og í öllu á þessum tímum. Ég kenni náttúrufræði meira á yngri stigum og nemendurnir voru mjög spenntir. Við fórum í fallegu veðri niður í fjöru og hópurinn iðaði af lífi. Ég get alveg sagt að það verður tvennt sem þau spyrja um í haust – það eru setlög og snið. Ég er fullviss um að áhuginn mun aukast eftir því sem þau kynnast verkefninu betur. Ekki síst vegna þess að Jóhannes er alveg frábær fræðimaður og það er svo gaman fyrir þau að kynnast hans vinnubrögðum og sérfræðiþekkingu. Það að vinna með fræðimanni er mikils virði. Það er ekki í boði að fylgjast ekki vel með þegar við förum á vettvang með Jóhannesi því það er ekki á hverjum degi sem þau fá slíkan fræðimann aukalega í kennsluna. Það er mikilvægt að læra að úti á vettvangi er einnig kennslustund í gangi en ekki bara göngutúr. Það er mikill munur á því.
En Jóhannes, hvernig fannst þér að vera allt í einu kominn með nemendahóp?
Jóhannes Marteinn: Mér fannst það flott, sérstaklega yngstu krakkana sem eru mjög áhugasamir um sand, en það er nú kannski ekki algengt hjá þeim sem eldri eru. Einnig veit ég að þetta verður áhugaverðara og skemmtilegra þegar fleiri niðurstöður fara að liggja fyrir og þau sjá afraksturinn milli ára. Ég fann strax mun þegar þau fóru að mæla nú í annað skiptið, þau vissu alveg hvað þau áttu að gera og því var auðveldara að útskýra um hvað þetta snýst og nú fara þau að sjá breytingarnar á milli ára. Þau munu reikna út flatar- og rúmmálsbreytingar á fjörunni – hvort hún sé að vaxa út eða hopa – og sjá niðurstöður eigin rannsókna sem verður mjög ánægjulegt. Þetta sýnir þeim jarðfræðina í allt öðru ljósi. Rannsóknin mun hjálpa til við að bregðast við loftslagsbreytingum en þær hafa mikil áhrif á strandsvæði við Ísland. Mælingarnar sjálfar eru lítið mál en það sem verður krefjandi er hvernig við tökum efni sem kennt er á háskólastigi og færum það yfir á grunnskólastigið.
Kolbrún: Markmiðið er að setja upp ráðstefnu þar sem nemendur kynna niðurstöður og þá þurfa þau að standa skil á verkefninu og eiga meira í því. Á fjögurra ára fresti er gerð úttekt á jarðvanginum til að halda UNESCO stimplinum og þá væri upplagt að hafa slíka ráðstefnu því samstarf af þessu tagi er mikill ávinningur fyrir jarðvanginn.
Mælingarnar sjálfar eru lítið mál en það sem verður krefjandi er hvernig við tökum efni sem kennt er á háskólastigi og færum það yfir á grunnskólastigið.
Hvaða þýðingu hefur svona verkefni fyrir samfélagið?
Kolbrún: Það er auðvitað misjafnt hversu mikið nemendur fylgja slíku verkefni eftir, heima fyrir og út á við. Það er alveg klárt að krakkarnir okkar vita orðið meira um hvað sandur er, t.d að sandur er jarðefni, og einnig vita þau hvernig sniðin raðast eftir veðri.
Jóhannes Marteinn: Mikilvægt er að þau læra af því að framkvæma, fá að vera á vettvangi og mæla og koma við. Eitt af stóru atriðunum er sérstaða Víkur varðandi rof á ströndum. Ein pæling varðandi verkefnið er að kenna nemendum hvernig ástandið hefur verið hér í Vík. Ég man sjálfur sem krakki eftir fréttum af því hversu slæmt ástandið var orðið í Vík og farið að ógna byggð en svo voru sandfangarar byggðir og eiga Vegagerðin og Mýrdalshreppur hrós skilið fyrir að láta þá snúa í átt að sjó en ekki þversniðna vörn. Það voru mikil vísindi í að reikna út hvernig aldan lendir á ströndinni svo hægt væri að byggja upp fjöruna í stað þess að einungis verja hana. Þetta hefur heppnast vel og sandfangarar tryggja að það er sandfjara við Vík því annars hefði þetta orðið stórstraumsfjara með grjóti og sandurinn á endanum horfið að mestu. Þannig að þetta var mikil framsýni. Nú hefur seinni sandfangari verið reistur en hann er ekki að safna eins miklum sandi og hinn og þessi rannsókn mun sýna fram á hvort hann sé að safna upp eða ekki og hvort hann sé að verja strandásinn eða ekki. Svona rannsókn þarf fimm ár til að gögnin séu tölfræðilega marktæk um breytingar á ströndinni. Samfélagslega mun verkefnið hjálpa Mýrdalshreppi að skipuleggja byggð við Vík og Vegagerðinni varðandi hugsanlegt nýtt vegastæði og hvaða aðgerðir verður farið í á ströndinni en aðallega kennir verkefnið nemendum að gleyma ekki hvernig ástandið var hér við ströndina því þetta ástand getur alltaf komið aftur.
Rannsóknin mun hjálpa til við að bregðast við loftslagsbreytingum en þær hafa mikil áhrif á strandsvæði við Ísland.
Kolbrún: Nú eru fyrstubekkingarnir að byrja í verkefninu og hugsið ykkur hvað þau hafa lært mikið í lok tíunda bekkjar. Verkefnið á eftir að þróast og einnig má taka það fram að það byggir mikið á fólkinu sem það leiðir og því mikilvægt að halda í sérfræðingana.
Jóhann Marteinn: Ég er ekki kennari og kann lítið að miðla til krakkanna og því er mikilvægt í samstarfinu að fá kennarana til að miðla efninu og upplýsingum til nemenda. Það sem ég segi er ekki endilega í þeim búningi að það miðli sem mestu og því er ómetanlegt að hafa kennarana sem eru sérfræðingar í því.
Kolbrún: Ég vil nú skjóta hér inn að lokum að ég er sannfærð um að eftir tíu ár verður Jóhannes orðinn fullkominn kennari. Hann lærir jafnmikið af okkur kennurum og við af honum sem jarðfræðingi.
Frásögn af rannsóknarferð nemenda í Víkurfjöru í maí 2021
Katla jarðvangur og nemendur í 3.-4. bekk fóru í stutta rannsóknarferð út í Víkurfjöru í morgun. Áður en haldið var út í fjöru lærðu nemendur um muninn á föstum jarðlögum og lausum, hvað setlagafræði er og hver munurinn er á milli jarðfræðinga sem rannsaka eldfjöll og setlög. Þegar komið var í fjöruna tóku við athuganir á sandinum í fjörunni og hvernig fjaran byggist upp.
Grafin voru tvö lítil snið og lögin sem byggja upp fjöruna skoðuð, ásamt mismunandi kornastærð þeirra. Nemendur lærðu samhliða því af hverju það er mismunandi kornastærð í fjörunni og í hvernig aðstæðum má búast við að mismunandi lög byggist upp. Þá sigtuðu nemendur sand til að aðskilja mismunandi kornastærð og tóku sýni. Þá var einnig rölt aðeins eftir fjörunni og mismunandi steinar skoðaðir, meðal annars móberg sem nýttist vel til að útskýra enn betur muninn á lausum og föstum jarðlögum. Veðurblíðan lék við nemendur og kennara, og varð ekki betur séð en að allir væru ánægðir með ferðina.
Þá mældi 5.-10. bekkur einnig sniðin sem þau eru að fylgjast með í Víkurfjöru í lok apríl. Var þetta önnur mæling eldri nemenda í fjörunni og er hluti af rannsóknarverkefni Víkurskóla og Kötlu jarðvangs. Á næsta skólaári munu nemendur síðan fara að vinna úr þeim gögnum sem þau hafa aflað núna í vetur og vor, ásamt því að halda áfram rannsóknum sínum í Víkurfjöru. Nemendur Víkurskóla munu síðan gera grein fyrir fyrstu niðurstöðum sínum næsta vor, en þá verða þau búin að fylgjast með fjörunni í eitt ár.
Frétt af vef katlageopark.is
Viðtalið við Jóhannes og Kolbrúnu birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2021