Fallegt umhverfi og útivistarparadís

Fréttir|14. maí 2023

Bifröst í Borgarfirði er meðal fallegustu staða landsins. Félagsmönnum KÍ gefst nú kostur á dvelja þar en sjóðurinn keypti raðhúsalengju á Bifröst fyrir tveimur árum. Frípassi í golf fylgir með.

Bifröst er nýlegur kjarni í eigu OKÍ. Sjóðurinn festi kaup á átta íbúða raðhúsalengju í háskólaþorpinu fyrir tveimur árum, eða 2021. Raðhúsin standa við Víðihraun sem er gata efst í byggðinni og næst gígnum Grábrók.

Gönguleiðir eru margar í kringum Hreðavatn og svo er alltaf gaman að fara upp á Grábrók. Þá er vert að ganga um Jafnaskarðsskóg og heimsækja Paradísarlaut. Baula, eitt tignarlegasta fjall landsins, trónir yfir landinu.

Fallegt útsýni er úr íbúðunum yfir Borgarfjörð. Um tveggja herbergja íbúðir er að ræða, hver um sig er 45 fermetrar. Íbúðirnar voru gerðar upp og heitur pottur fylgir hverri íbúð.

Golfvöllur í göngufæri

Bifröst og nágrenni er rómað fyrir náttúrufegurð og margir möguleikar til útiveru. Golfáhugafólk getur nýtt golfvöllinn Glanna en frípassi fyrir tvo fylgir dvöl á Bifröst. Golfvöllurinn er í göngufæri.

Bifröst er í þægilegri akstursfjarlægð úr höfuðborginni, um 100 kílómetrar.

Greinin birtist í Ferðablaðinu, 1. tbl. 2023