Fagmennska við krefjandi aðstæður

Fréttir|8. janúar 2021
Pistill

KÍ mun áfram berjast fyrir skólastarfi, fyrir öryggi sinna félagsmanna og krefjast þess að við það sé haft samráð um aðgerðir.

Kæru kennarar

Ég óska ​​ykkur öllum gleðilegs nýs árs og vonast til að árið 2021 reynist ykkur gifturíkt í lífi og starfi. Við erum örugglega öll fús til að snúa við blaðinu og segja skilið við árið sem liðið er. Árið sem hafði margvíslega áhrif á okkur og skilur eftir sig ör, líðan okkar er önnur en venjulega við upphaf nýs árs. Ekki hefur verið mögulegt að sinna félagslegum tengslum og vinnuaðstæður hafa markast að ástandinu. Væntanlega mun taka mörg ár ef ekki áratugi að vinna bug á áhrifum heimsfaraldursins á samfélagið. Þrátt fyrir það er sú reynsla sem fylgir árinu 2020 afar dýrmæt.

Tilhlökkun yfir nýju ári og áskorunum er blandin vonum um heilbrigði á heimsvísu þar sem faraldurinn er undir stjórn. Kennarasamband Íslands mun áfram berjast fyrir skólastarfi, fyrir öryggi sinna félagsmanna og krefjast þess að við það sé haft samráð um aðgerðir. Til þess að skólastarf verði sem eðlilegast er nauðsynlegt að starfsfólk skóla verði meðal fyrstu hópa landsmanna til að fá bólusetningu. Hér á landi hefur það verið sett í forgang að halda úti eins miklu skólastarfi og unnt er og er þessi krafa því eðlileg. Í ársbyrjun 2021 hefur verið gefið út að verulega eigi að auka við staðnám framhaldsskólanema líkt og gert var í haust í leik- og grunnskólum. Til þess að unnt sé að halda úti skólastarfi í leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskólum er nauðsynlegt að tryggja heilbrigt og öruggt vinnu- og námsumhverfi fyrir bæði nemendur og kennara. Því þó að skert skólastarf og kennsla í gegnum netið hafi haft mikil áhrif á nemendur hvað varðar álag á starfsfólk, aukinn ójöfnuð nemenda og skort á þátttöku nemenda, yrðu áhrif enn meiri ef ekki er vandað til verka.

Starfsemi KÍ litaðist á liðnu ári mjög af heimsfaraldrinum. Aukinn tími hefur farið í samráð með stjórnvöldum og fyrirsvar um réttindi kennara. Þá hefur fagleg vinna tengd faraldrinum líka verið nokkur. Í haust hélt Skólamálaráð KÍ málstofu um áhrif COVID-19 á skólastarf, sambandið kom að skipulagi málstofuraðar á vegum menntamálaráðuneytisins um áhrif COVID-19 á menntakerfið sem og fyrirhugaðrar bókar sem mun innihalda sögur kennara og nemenda af ástandinu. Alla jafna tekur KÍ þátt í erlendu samstarfi, bæði innan Norðurlandanna og á heimsvísu. Eðlilega lágu ferðalög niðri á tímabilinu en KÍ tók þátt í fjölda málþinga og funda um áhrif COVID-19 á skólastarf um allan heim.

Viðfangsefni á nýju ári eru fjölmörg og varða réttindi félaga okkar, aðgengi allra barna og ungmenna að menntun sem og jafnrétti, lýðræði og sjálfbærni í skólastarfi. Þá má nefna að KÍ tók við formennsku í NLS, Norrænu kennarasamtökunum, í ársbyrjun og mun því verða leiðandi í samstarfi kennara á Norðurlöndum á árinu. Á þessu ári hefst einnig undirbúningur fyrir næsta reglulega þing KÍ sem haldið verður árið 2022 og aukaþingi verður framhaldið fyrir lok apríl. Fyrir þann tíma þarf að endurskoða alla stefnumótun KÍ. Við þá stefnumótun er tekið mið af þróun og stöðu mála í íslensku menntakerfi og málin sett í alþjóðlegt samhengi.

Þá má nefna að KÍ tók við formennsku í NLS, Norrænu kennarasamtökunum, í ársbyrjun og mun því verða leiðandi í samstarfi kennara á Norðurlöndum á árinu.

Meðal annars mun stefnumörkun KÍ taka mið af því að í desember síðastliðnum var stefna mörkuð fyrir ETUCE, evrópsku kennarasamtökin, á rafrænu þingi. Þar var tekist á við mörg viðfangsefni samtímans auk heimsfaraldursins og stefna sett til næstu tveggja ára. Stefna ETUCE varðar réttindi stéttarfélaga, kjör félagsfólks, aukna einkavæðingu í menntun, jafnrétti, rétt barna og ungmenna til gæðamenntunar, aðgreiningu nemenda, lýðræði og sjálfbærni. Þau málefni sem þar voru sérstaklega sett á oddinn á næstu árum voru innleiðing jafnréttis- og aðgreiningaráætlunar og sérstök áhersla á menntun í neyðarástandi í loftslags- og umhverfismálum.

Verkefni KÍ á árinu verða því eins og hjá félögum okkar mörg og margslungin og forgangsraðað eftir aðstæðum í samfélaginu hverju sinni. Vonandi verður þess þó ekki langt að bíða að við getum hist aftur á mannamótum og unnið saman að mikilvægum málum. Mikil áhersla hefur undanfarið verið lögð á fagmennsku og sjálfstæði kennara. Í því felst að félagar í öllum okkar aðildarfélögum þurfa að axla vissa ábyrg og takast á við ný viðfangsefni í samvinnu við aðra. Stefna sem KÍ markar sér án samráðs við félagana hefur lítið að segja. Því þarf KÍ hér eftir sem hingað til að vera í opnu og nánu samstarfi við sitt fólk.

Að þessu sögðu óska ég ykkur alls hins besta á komandi ári. Ég vona að þið eigið gott ár í vændum og hlakka til áframhaldandi góðs samstarfs í mikilvægum málum.