Faglegt sjálfstæði faggreinafélaga í hættu

Fréttir|4. desember 2015

Samlíf, samtök líffræðikennara, hvetja menntamálaráðherra til að endurskoða ákvörðun ráðuneytisins að breyta verklagi við veitingu rekstrarstyrkja til faggreinafélaga á þá lund að styrkir verði einvörðungu veittir til verkefna sem fagfélög eru fengin til að vinna fyrir ráðuneytið. „Með þessari breytingu er faglegu sjálfstæði kippt undan faggreinafélögum auk þess sem þátttaka kennara af landsbyggðinni í stjórnarstarfi faggreinafélaganna er útilokuð,“ segir í bréfi Samlífs til ráðherra. 

Í bréfi Samlífs er jafnframt bent á að árlegur styrkur til faggreinafélaga hafi undanfarin ár verið 150 þúsund krónur, eftir mikinn niðurskurð eða úr 800 þúsund krónum. Starfsemi faggreinafélaganna sé því nú þegar sniðinn ansi þröngur stakkur. 

Bréf Samlífs til menntamamálaráðherra.