Fagleg rök virt að vettugi þegar ákveða á fjölda barna í rými

Ný skýrsla um vinnuumhverfi barna og fullorðinna í leikskólum hefur litið dagsins ljós.
Skýrsla frá því í haust leiðir í ljós að stjórnendur leikskóla eiga margir hverjir á brattann að sækja þegar kemur að samráði þeirra og rekstraraðila. Fagleg rök eru jafnvel virt að vettugi þegar ákveða á fjölda barna. Þetta er meðal niðurstaðna vinnu starfshóps sem Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla skipaði árið 2020 í kjölfar háværrar umræðu meðal leikskólakennara og stjórnenda um vinnuaðstöðu barna og fullorðinna í leikskólum. Kallað hefur verið eftir endurskoðun reglugerðar um starfsumhverfi leikskóla 655/2009 þar sem hvergi er minnst á lágmarksrými barna við nám og leik eða fullorðinna við vinnu.
Starfshópurinn skilaði skýrslu um rými, réttindi og starfsaðstæður barna og fullorðinna í leikskólum og um samráð leikskólastjóra og rekstraraðila. Starfshópurinn leggur eftirfarandi til:
Bæta þarf inn í reglugerð um leikskóla lágmarksviðmiði um stærð leikrýmis sem tilheyrir leikskóladeild, þ.e. þess svæðis sem nýtist til leiks og náms allan daginn. Í samræmi við niðurstöður kannananna leggur starfshópurinn til að það viðmið verði ekki minna en 5,8 m2 fyrir hvert barn.
Taka þarf tillit til reglugerðar um húsnæði og vinnustaði 581/1995 um lágmarksviðmið um rými fyrir hvern fullorðinn. Gera skal ráð fyrir 4,8 m2 til viðbótar við það rými sem tilheyrir hverju barni.
Gera þarf ráð fyrir rými fyrir stoðtæki vegna sérþarfa barna.
Samkvæmt núgildandi reglugerð um starfsumhverfi leikskóla á leikskólastjóri að taka ákvörðun um fjölda barna, að höfðu samráði við sveitarstjórn eða nefnd sveitarfélags sem fer með málefni leikskóla í sveitarfélaginu. Setja þarf markvissar verklagsreglur um slíkt samráð svo umboð leikskólastjóra verði afdráttarlaust til að taka ákvörðun um barnafjölda í leikskólum hverju sinni.
Starfshópurinn afhenti formönnum Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla skýrsluna og verður unnið úr henni í framhaldinu, meðal annars með því að funda með hagaðilum.