Fagleg forysta kennara verður rædd á Skólamálaþingi KÍ
Forysta kennara í skóla- og menntamálum verður í brennidepli á Skólamálaþingi KÍ sem haldið verður á Alþjóðadegi kennara, 5. október 2016.
Á þinginu verður fjallað um hvernig kennarar geta eflt samræðu um starf sitt og menntun barna og ungmenna. Hvernig eflum við forystu kennara í skóla- og menntamálum og hvernig verður menntun efld sem leiðarljós jafnræðis og lýðræðis?
Aðalfyrirlesari Skólamálaþingsins verður hinn virti prófessor og fræðimaður, dr. David Frost, sem hefur á undanförnum áratugum fjallað um margvísleg svið menntafræðilegrar forystu og kennslufræði. Undanfarið hefur Frost einkum lagt áherslu á faglega forystu kennara og þá hefur hann lengi þróað aðferðir sem styðja við kennara sem breytingaafl í skóla- og menntamálum. Hann er meðal höfunda bókarinnar Flip the System sem kom út á síðasta ári.
Kveikjan að Skólamálaþinginu er sú ríka viðleitni Kennarasambandsins að auka jákvæða umræðu kennarastarfið og skóla- og menntamál.
Skráning á Skólamálaþingið er hafin og hægt er að kynna sér efni þingsins nánar hér.