Fagháskólastig er nýr valkostur

Fréttir|7. október 2022

Undirrituð hefur verið samstarfslýsing um þróun og innleiðingu fagháskólanáms í leikskólafræðum á landsvísu. Spennandi valkostur, segir ráðherra háskólamála.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um þróun og innleiðingu fagháskólanáms í leikskólafræðum á landsvísu. Auk ráðuneytanna koma Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Samband íslenskra sveitarfélaga að yfirlýsingunni, en markmið hennar er að efla menntun starfsfólks leikskóla um land allt.

Frá þessu er greint í frétt á vef Stjórnarráðsins. 

,,Fagháskólastig í leikskólafræðum er spennandi valkostur enda mikilvægt að við fjölgum valkostum, bæði með styttra námi og með auknum sveigjanleika þar sem hægt er að stunda nám samhliða vinnu,” segir Áslaug Arna, ráðherra háskólamála. „Þá skapar þetta hvata til háskólanáms fyrir stærri hóp en áður sem hefur ekki átt kost á að mennta sig."

Fyrir hverja er námið

Fram kemur í fyrrnefndri frétt að verkefninu sé ætlað að gera starfsfólki leikskóla, sem hefur ekki lokið stúdentsprófi, kleift að stunda fagháskólanám sem verður að fullu metið inn í fimm ára leikskólakennaranám.

„Háskóli Íslands þróar og skipuleggur fagháskólanám í leikskólafræðum og mun Menntavísindasvið skólans bera ábyrgð á framkvæmd verkefnisins. Nemendum stendur til boða að fá stuðning við ástund námsins frá starfsfólki háskólans, fræðslustofnunum í heimabyggð og viðkomandi sveitarfélagi. Verkefnið er þarft enda vantar um 1.500 leikskólakennara til starfa á Íslandi, en hér á landi er lægsta hlutfall menntaðra leikskólakennara meðal OECD-ríkja," segir orðrétt í frétt Stjórnarráðsins.