Fagfélögin styðja baráttu kennara

Kennarasambandinu hefur borist stuðningsyfirlýsing frá Fagfélögunum.
Fagfélögin lýsa yfir fullum stuðningi við kennara í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Að Fagfélögunum standa Byggiðn – Félag byggingamanna, MATVÍS –Félag iðnaðarmanna í matvæla- og veitingagreinum, RSÍ – Rafiðnaðarsamband Íslands og aðildarfélög, VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna.
Yfirlýsing vegna kjarabaráttu kennara
Fagfélögin lýsa yfir fullum stuðningi við yfirstandandi baráttu kennara fyrir bættum kjörum. Allir hópar launafólks í samfélaginu eiga óskertan rétt á að nýta þau úrræði sem lög heimila til að knýja á um kjarabætur. Kennurum ber engin skylda til að fylgja fordæmi annarra hópa sem gert hafa samninga á vinnumarkaði.
Fagfélögin telja enn fremur ótækt að Samtök atvinnulífsins, sem ekki eiga aðild að samningaviðræðum við kennara, leggi með yfirlýsingum stein í götu hópa sem berjast fyrir bættum kjörum.
Fagfélögin