Fagfélag nýliða í kennslu stofnað á mánudag

Mikilvægt er að nýliðar í kennslu fái stuðning í starfi. Liður í því er að stofna fagfélag nýliða í kennslu.
Fagfélag nýliða í kennslu verður stofnað mánudaginn 7. október. Stofnfundurinn fer fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins við Borgartún, en einnig verður hægt að sækja fundinn á Teams.
Ákveðið var á áttunda þingi KÍ 2022 að stofna fagfélag nýliða í kennslu, enda mikilvægt að nýir kennarar fái stuðning fyrstu árin í starfi.
Líkt og segir í samþykkt þingsins starfar félagið þvert á skólastig. Nýliðar geta tekið þátt í starfi félagsins síðasta árið í námi og fyrstu fimm ár kennslu. Það sama á við um kennaranema sem starfa við kennslu og kennara sem flytja sig milli skólastiga.
Félagið verður sjálfstætt starfandi félag með formann sem er tengilliður við Kennarasambandið. Fræðslunefnd KÍ sér um reglubundna fræðslu fyrir félaga fyrir hönd sambandsins.
Kennarasamband Íslands fagnar stofnun félagsins og hvetur nýliða í kennslu til að sækja stofnfundinn á mánudag, annað hvort með því að koma í höfuðstöðvar KÍ við Borgartún eða taka þátt í fundinum á netinu.

Þing Kennarasambandsins árið 2022. Þar var ákveðið að stofna fagfélag nýliða í kennslu.
Dagskrá stofnfundarins er eftirfarandi
Klukkan 14:15
Fundur settur og í kjölfarið fer Jónina Hauksdóttir, varaformaður KÍ, yfir skipulag og starfsemi KÍ.
Klukkan 15:00
Guðrún Ragnarsdóttir prófessor og Svava Björg Mörk lektor, báðar sérfræðingar í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf við HÍ, flytja erindi sem þær kalla Gerum þetta saman: Tilfinningaleg ígrundun og verkfærakista jafningja. Því næst flytur Soffía Ámundadóttir, verkefnastjóri Menntafléttunnar, erindi sem hún kallar Menntafléttan – fjölbreytt netnámskeið fyrir kennara á öllum skólastigum.
Klukkan 15:45
Stóra stundin rennur upp og félag nýliða í kennslu verður stofnað formlega; fram fer stjórnarkjör og stofnfundagerð verður undirrituð.
Fundarlok eru áformuð klukkan 16:15.