Fær greidd lausnarlaun vegna langvarandi veikinda

Fréttir|9. ágúst 2022

Félagsdómur féllst á kröfu Félags leikskólakennara um að Kópavogsbæ beri að greiða leikskólakennara lausnarlaun samkvæmt kjarasamningi vegna langvarandi veikinda kennarans.

Ágreiningur hafði komið upp milli aðila um hvernig túlka bæri ákvæði kjarasamnings um lausnarlauna þegar starfsmaður óskar eftir greiðslu þeirra. Dómurinn var kveðinn upp á mánudaginn 27. júní síðastliðinn.

Kennarinn hafði í tvígang óskað eftir því við bæjarfélagið að hún yrði leyst frá störfum og henni greidd lausnarlaun vegna óvinnufærni.

Samkvæmt kjarasamningi er starfsmanni heimilt að láta af störfum er hann óskar þess ef hann er samkvæmt læknisvottorði orðinn varanlega ófær um að gegna starfi vegna vanheilsu. Undir slíkum kringumstæðum ber þá að greiða honum lausnarlaun.

11.5.1 Þegar starfsmaður er leystur frá störfum skv. gr. 11.4.1 - 11.4.3, skal hann halda föstum launum skv. gr. 11.2.6 í 3 mánuði.

Í málinu lá fyrir vottorð frá trúnaðarlækni Kópavogsbæjar, þar sem fram kom að kennarinn væri ekki fær um að sinna starfi sínu að svo stöddu sökum veikinda. Ólíklegt væri að hún myndi snúa aftur til starfa af heilsufarsástæðum.

Bæjarfélagið vildi þó meina að vottorðið dygði ekki til að uppfylla skilyrði kjarasamningsins um lausnarlaun. Til þess þyrfti að koma fram í læknisvottorði að starfsmaðurinn væri varanlega ófær um að gegna starfi vegna vanheilsu.

Í kjölfarið barst yfirlýsing frá trúnaðarlækni þar sem meðal annars segir að samkvæmt endurmati sé kennarinn ekki fær um að sinna starfi sínu. Hún sé enn í meðferð vegna sjúkdóms og muni ekki snúa til vinnu að nýju.

Málsaðilum greindi á um túlkun og heimildir ákvæðisins

Þrátt fyrir fyrirliggjandi læknisvottorð hafnaði bæjarfélagið beiðni kennarans um lausnarlaun og vísaði í að í umræddu kjarasamningsákvæði fælist ekki réttur starfsmanns til að fá lausn frá störfum á þeim tíma sem hann óskaði. Vinnuveitandi gæti hafnað slíkri beiðni ef fyrir lægju málefnalegar forsendur. Í þessu tilfelli var ekki talin brýn þörf á því að losa starf kennarans og ráða nýjan starfsmann og féllst því bæjarfélagið ekki á beiðnina. 

Kennarinn, sem féllst ekki á þessa túlkun sveitarfélagsins, benti á að ákvæðið hefði um langt skeið verið túlkað þannig að veita ætti varanlega óvinnufærum starfsmanni lausn frá störfum, óskaði hann eftir því, og greiða honum lausnarlaun. Um þetta væri samhugur hjá ríkinu og stéttarfélögum.

Þessu til stuðnings var vísað til fundargerðar samráðsnefndar um veikindarétt sem skipuð var fulltrúum aðila að samkomulagi BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og Samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Þess utan stæði í kjarasamningi að vinnuveitanda væri óheimilt að halda starfsmanni sem væri varanlega ófær um að gegna starfi vegna vanheilsu, í vinnu.

11.4.3 Ekki skulu framangreind ákvæði um veikinda- og slysaforföll vera því til fyrirstöðu að starfsmaður láti af störfum er hann óskar þess ef hann er samkvæmt læknisvottorði orðinn varanlega ófær um að gegna starfi vegna vanheilsu.

Félagsdómur sammála FL

Félagsdómur féllst á sjónarmið Félags leikskólakennara og sagði enga heimild að finna í ákvæðinu til handa vinnuveitanda til að hafna beiðni starfsmanns.

„Við þessar aðstæður var skylt að verða við beiðni leikskólakennarans um lausn frá störfum, sbr. grein 11.4.3 í kjarasamningi. Það fær hvorki stoð í orðalagi ákvæðisins né markmiði þess að vinnuveitandi hafi við þessar aðstæður val um hvort hann verði við beiðni starfsmanns, svo sem með hliðsjón af því hvort hann telji brýnt að ráða nýjan starfsmann.“

Félagsdómur féllst því á kröfur kennarans um að hún ætti rétt á því að vera leyst frá störfum samkvæmt kjarasamningi og hljóta greiðslu lausnarlauna frá bæjarfélaginu.

Gísli Guðni Hall hrl. rak málið fyrir hönd Kennarasambands Íslands/Félags leikskólakennara.

Hér má nálgast dóminn.