Fá grunnþjálfun í uppeldi hunda

Boðið er upp á valnámskeiðið „Allt um hunda“ fyrir nemendur í 8. til 10. bekk við Hraunvallaskóla. Halldóra Lind Guðlaugsdóttir, sem á þrjá hunda, sér um námskeiðið ásamt Hildi Guðrúnu Gunnarsdóttur þroskaþjálfa. „Mér finnst líka mjög gefandi að sjá hvað krakkarnir eru áhugasamir og hvað er mikill kraftur í þeim. Þetta er eitthvað sem drífur þá áfram. Það er svo mikilvægt að fá stundum að velja hvað maður vill læra.“
Boðið er upp á valnámskeiðið „Allt um hunda“ fyrir nemendur í 8. til 10. bekk við Hraunvallaskóla. Halldóra Lind Guðlaugsdóttir, sem á þrjá hunda, sér um námskeiðið ásamt Hildi Guðrúnu Gunnarsdóttur þroskaþjálfa. „Mér finnst líka mjög gefandi að sjá hvað krakkarnir eru áhugasamir og hvað er mikill kraftur í þeim. Þetta er eitthvað sem drífur þá áfram. Það er svo mikilvægt að fá stundum að velja hvað maður vill læra.“
Halldóra Lind Guðlaugsdóttir segir að sig hafi lengi langað til að eignast hund þegar hún var barn og þegar hún var 12 ára gáfu foreldrar hennar þeim systkinunum hund. „Það vatt aðeins upp á sig og vorum við mest með fjóra hunda heima þegar við vorum krakkar. Hundaáhuginn hefur ekki minnkað og ég á þrjá hunda í dag.“ Hundarnir hennar heita Skuld, Tuva og Blue og eru af tegundunum Chihuahua, Shetland Sheepdog og Border Collie.
Halldóra Lind flutti ásamt eiginmanni sínum til Noregs árið 2010 þar sem hún lærði að verða hundaþjálfari og með í för voru tveir hundar, Cavalier King Charles Spaniel hundurinn Askur, sem var jafnframt hennar fyrsti hundur, og Chihuahua tíkin Skuld.
„Mér hafa alltaf þótt samskipti við hunda svo auðveld,“ segir Halldóra Lind þegar hún er spurð hvað það hafi verið við hunda sem hafi heillað hana sem barn. „Ég var ofsalega feimin sem krakki og það var alltaf svo auðvelt að eiga samskipti við dýr. Það var svo gaman að þegar ég fékk fyrsta hundinn þá fór ég í raun og veru að hafa miklu meiri samskipti við fólk af því að ég fór að tala um hundinn og var mikið í félagsskap í gegnum allt sem tengdist hundum. Ég fór svo að halda fyrirlestra um hunda eftir að ég lærði hundaþjálfun; eitthvað sem ég hafði ekki ímyndað mér að ég gæti gert þegar ég var krakki af því að ég var svo rosalega feimin. Árið 2013 stofnuðum við Heiðrún Klara Johansen Hundaakademíuna, eftir að ég hafði lært hundaþjálfun í Noregi og hundaatferlisfræði í Svíþjóð. Þegar ég eignaðist strákinn minn árið 2015 þá fann ég að mig langaði ekki til að vinna mikið á kvöldin og um helgar en þá var ég einnig í kennaranámi. Ég vann við hundaskólann út árið 2016 en byrjaði svo að kenna í Hraunvallaskóla haustið 2017. Heiðrún er hins vegar ennþá með Hundaakademíuna.“
Talað um gelt
Halldóra Lind segir að hún hafi saknað þess að vinna ekki lengur við hundaþjálfun og segir að hún hafi slegið til þegar samstarfskona hennar við Hraunvallaskóla, Hildur Guðrún Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, stakk upp á því að þær myndu bjóða upp á valnámskeið tengt hundum og er þetta annar veturinn sem boðið er upp á námskeiðið fyrir nemendur í 8. - 10. bekk.
„Við Hildur eigum báðar hunda og vorum einn daginn að spjalla um hvað hundar geta gert fyrir börn. Hildur stakk upp á þessu námskeiði en við töluðum um að það væri gaman að bjóða upp á valnámskeið fyrir unglinga. Það eru margir sem hafa áhuga á hundum og það er líka gaman að geta lært í gegnum það sem þeim finnst skemmtilegt. Við kennum þeim en svo eru þeir líka að grúska og kynna fyrir okkur verkefni sem tengjast því sem þeim finnst áhugavert við hunda.“
Halldóra Lind segir að í tímunum sé meðal annars fjallað um merkjamál hunda, gelt, stress, þjálfun, umhverfisþjálfun, uppruna hunda, hundategundir og lög og reglur. „Krakkarnir fá svo tækifæri til að umhverfisþjálfa hvolpa og kenna hundum alls konar kúnstir. Í ár fá nemendur síðan möppu með fræðsluefni um hunda.“
Halldóra Lind segir að nemendur fái ágætis grunn í hundauppeldi.
„Það eru ekki hundar í hverjum einasta tíma. Við reyndum í fyrra að vera eins mikið með hunda í tímum og við gátum en þá vorum við ekki með hunda inni í skólanum og var leiðinlegt að draga alla út í leiðinlegu veðri þegar átti að vera með hund í tíma. Í vetur fengum við að vera í kofa úti þannig að ef veðrið er ekki gott þá getum við samt verið með hund. Border Collie tíkin mín er rosalega hrifin af krökkum og kemur oft með smá látum. Krakkarnir fengu leiðbeiningar um hvernig þeir ættu að tækla hana þegar hún kemur og þeir hjálpa mér að kenna henni en hún þarf að sitja róleg til að fá klapp og knús. Þeir voru samtaka um að snúa baki í hana ef hún ætlaði að hoppa upp á þá og hún settist þá róleg niður til að fá klór. Hún er svo ung og vitlaus ennþá, bara eins og hálfs árs.
Hundar sem krakkarnir hafa stundum komið með hafa verið ótrúlega flottir en þegar krakkarnir koma með hundana sína í tíma þá er það í tengslum við ýmislegt sem við erum að gera. Það er til dæmis vinsælt hjá krökkum sem eiga hunda að vera með tegundakynningu um sinn hund eða sína tegund og þá koma þeir með hundana til að sýna öðrum. Um helmingur nemenda sem velja þetta námskeið á ekki hund og fær þá smá útrás þarna.“
Áhugaverð verkefni
Halldóra Lind segir að nemendur komi með flottar hugmyndir að verkefnum. „Í fyrra gerði til dæmis nemandi flott verkefni um uppruna hundsins, krakkarnir eru mikið með tegundakynningar og í haust gerðu nokkrar stelpur verkefni um björgunarhunda. Nemendur læra hvernig á að gera þjálfunarplan til að kenna hundunum skemmtilegar kúnstir og þegar þjálfunarplanið er tilbúið fá þeir að kenna hundunum. Það gekk vonum framar í fyrra. Við notuðum klikker til að móta hegðunina en það er lítið tæki sem gefur frá sér smell. Við smellum þegar hundurinn fer í rétta átt í þjálfuninni og gefum nammi. Smám saman getur hundurinn gert það sem við ákváðum í upphafi. Krakkarnir byrjuðu að æfa sig með klikkerinn, hver á eftir öðrum, og síðan þjálfuðu þeir hundana. Í fyrra náðum við einnig að láta hundana spora sem var mjög skemmtilegt. Nemendur fara víða í pælingum sínum en í upphafi annar spyrjum við nemendur hvort það sé eitthvað sérstakt sem þá langi til að gera í tengslum við hunda og reynum að verða við því ef það er hægt.“
Halldóra Lind segir að sér finnist nemendur vera langspenntastir fyrir því að umgangast hundana.
„Þetta er námskeið sem nemendur velja og það er þögn í tímum, nemendur bæði hlusta og spyrja spurninga. Algengt er að í lok kennslustunda komi þeir og segi mér frá einhverjum upplifunum sem þeir hafa átt í sambandi við hunda.“
Allir svo áhugasamir
Halldóra Lind segir að sér finnist æðislegt að kenna þetta námskeið en annars er hún sérkennari við miðdeild. „Það eru allir svo áhugasamir fyrir því sem verið er að gera. Þetta eru allt krakkar sem elska hunda. Það er þess vegna mikil gleði hjá okkur þegar við spjöllum um hunda og krakkarnir læra um eitthvað sem þeir elska. Það er sérstaklega skemmtilegt þegar nemendur eru sjálfir að grafa eftir upplýsingum í sín eigin verkefni, vinna heimildavinnu og annað til að leita að upplýsingum um hunda sem þeir kynna svo fyrir hinum. Mér finnst ég tengjast krökkunum öðruvísi en ella. Ég hef kennt sumum krökkunum áður en það er allt öðruvísi þegar maður er að kenna þeim eitthvað sem þeir hafa mikinn áhuga á. Mér finnst líka mjög gefandi að sjá hvað krakkarnir eru áhugasamir og hvað er mikill kraftur í þeim. Þetta er eitthvað sem drífur þá áfram. Það er svo mikilvægt að fá stundum að velja hvað maður vill læra.“
Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019